Mánudagur, 5. janúar 2015
Spilling, fréttahönnun og fjölræði
Björn Ingi Hrafnsson og Jón Ásgeir Jóhannesson eru ekki trúverðugustu eigendur fjölmiðla; um það er sagan ólygnust. Reynir Traustason og hans slekti var heldur ekki ýkja merkilegt í blaðamennskunni sem oft var meira í ætt við fréttahönnun en frásagnir af atburðum líðandi stundar.
Að þessu sögðu er fjölræði á fjölmiðlamarkaði margfalt betri en fákeppni, eins og E.B. White skrifaði fyrir daga netmiðla í frægri ritsmíð, og benti á að einar öfgar þjóna oft hlutverkinu að afhjúpa aðrar.
Nú ætla hraktir DV-arar að stofna til nýrrar útgáfu. Gangi þeim vel.
Sá hlær best sem á spilltustu vinina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.