Þriðjudagur, 2. desember 2014
1500 króna mál stjórnarandstöðunnar
Aðalmál stjórnarandstöðunnar er náttúrupassi sem á að kosta 1500 kr. og gilda í þrjú ár fyrir íslenska skattgreiðendur en vera tekjulind af ferðamönnum.
Þetta 1500 króna mál stjórnarandstöðunnar mun endast henni eitthvað fram yfir jól að ræða í þaula.
Þegar stjórnarandstaðan þjarkar um smámál er það vegna þess að stóru mál ríkisstjórnarinnar eru í fínu lagi.
Ekki bannað að fara í berjamó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Páll. Hvernig skilgreinir þú stjórn og stjórnarandstöðu á Íslandi?
Er ekki náttúrupassinn gott dæmi um hvernig baktjaldamafían veður áfram með siðlausri og löglausri frekju, eins og sú mafía hefur gert frá því að Frímúrara-hakakrossar-mafían hertók allt og alla hér og annarsstaðar á jörðinni?
Það er víst ekki til neitt einfalt svar við svona spurningum frá mér og öðrum, en samfélagsskylda okkar allra krefst þess að við veltum fyrir okkur staðreyndum.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.12.2014 kl. 21:08
Ég er hreint ekki viss um hvar þetta "smámál" kynni að enda.
Ætti ég á hættu að vera stoppuð af hriðskotavopnuðum ferðapassalöggæslumanni ef ég skrippi úr bænum , náttúrupassalaus, til að mæta í saumaklúbb hjá gamalli bekkjarsystur sem býr í Hveragerði?
Agla, 2.12.2014 kl. 22:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.