Sunnudagur, 23. nóvember 2014
Lögmaður slitastjórnar til varnar - nema hvað
Vilhjálmur Þ.Á. Vilhjálmsson er lögmaður hjá Borgarlögmönnum, en þar eru fyrir á fleti Steinunn nokkur Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson sem starfa fyrir slitastjórn/þrotabú Glitnis.
Rök Vilhjálms gegn skattlagningu þrotabúa eru málsvörn fyrir þrotabú Glitnis. Steinunn virðist hætt við að stefna ríkinu vegna skattlagningar og gerir út Vilhjálm í almenna umræðu, svona eins og til að sýna lit.
Ekki þarf að eyða frekari orðum á þann málflutning.
Ríkið geti ekki þurrkað upp þrotabúin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Ekki þarf að eyða frekari orðum á þann málflutning."
Nei, en jafn nauðsynlegt að benda á hverra hagsmuna menn gæta. Fréttamenn virðast ekki gera mun á upplýsingum og áróðri. Eins og þú þekkir manna best
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.11.2014 kl. 21:56
Var einmitt að spá í tengslin takk fyrir að benda á þau. Það hlaut að lá að. Maðurinn er auðvitað ekki marktækur með þennan málflutning miðað við tengslin.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.11.2014 kl. 23:19
þetta er bara staðreynd þó að bloggherinn líkar ekki við það
sleggjuhvellur, 24.11.2014 kl. 03:25
„Útgönguskatturinn þarf að vera mun hærri en 35% til að tryggja að almenningur fái stærsta hluta hagnaðarins hrægammasjóðanna og til að koma í veg fyrir gengishrun krónunnar þegar greitt verður úr þrotabúunum. Útgönguskatt þarf að leggja á í tveimur hlutum. Fyrst á útgreiðsluna úr þrotabúunum (Útgöngugjald) og síðan á fjármagn úr m.a. þrotabúunum og aflandskrónur sem skipt er yfir í erlendan gjaldeyri til að koma í veg fyrir gengislækkun krónunnar (Liljuskattur).
Þessi tvískipti útgönguskattur er í raun önnur aðferð til að ná fram sama markmiði og liggur til grundvallar Skiptigengisleiðinni, þ.e. að tryggja hagsmuni almennings í lokauppgjöri hrunsins“ (sjá: http://liljam.is/greinasafn/2014/leggjum-a-utgonguskatt-og-tryggjum-hagsmuni-thjodarinnar/)
Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.11.2014 kl. 04:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.