Föstudagur, 7. nóvember 2014
Framsóknarflokkurinn styrkir sig
Þrátt fyrir að fara með forsætið í ríkisstjórn sem á erfitt uppdráttar bætir Framsóknarflokkurinn við fylgi sitt. Fylgi Framsóknarflokksins er 12,3% í nýrri könnun í samanburði við 10,1% í síðustu könnun.
Samfylkingin bætir við sig einu prósentustigi og Vg aðeins minna en Sjálfstæðisflokkur tapar tveimur og hálfu prósentustigi.
Framsóknarflokkurinn getur vel við unað.
33% stuðningur við ríkisstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Flokkseigendur mega ekki hafa völdin. Það er hugsjón og sjálfstæð skoðun einstaklinganna, sem skipa flokkssætin sem hafa valdið í sínum höndum. Ef fólk skilur ekki styrk réttlátrar hugsjónar og mannúðar, þá er það fólk í fangelsi þöggunar og valdníðslu ræningjabanka tölvuveraldarinnar.
Lífið er einskis virði án frelsis til að berjast fyrir fordómalausu skoðanafrelsi og réttlæti. Of margir láta glepjast af greiðslum og forréttindum í þessari veröld.
Ef allir gætu skilið að allir eiga jafnan rétt á jörðinni, óháð stöðu, heilsufari og efnahag, þá færi heimurinn batnandi. Því miður eru trúarbrögð notuð til að afvegaleiða náungakærleika, mannúð og meðfæddan tilverurétt/frelsi einstaklinga samfélaganna á jörðinni.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.11.2014 kl. 15:41
Haldið þið að það sé munur að vanta ekki nema 0,5 prósentustig upp á að hafa sama fylgi og Samfó fékk í kosningunum 2013 !
Ómar Ragnarsson, 8.11.2014 kl. 00:10
Framsókn til framtíðar? Mig grunar að flokkurinn vilji frekar fara til fortíðar núna. Í mars 2013 mældist flokkurinn með 29.5% fylgi og var stærstur allra flokka. Við sjáum hvað setur.
Wilhelm Emilsson, 8.11.2014 kl. 02:04
Alltaf skemmtileg keppni,Framsóknarflokkurinn var ,hástökkvari, í seinustu kosningum,en norræna velferðarstjórnin ,felldi.-
Helga Kristjánsdóttir, 8.11.2014 kl. 17:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.