Miðvikudagur, 5. nóvember 2014
Dauðaöfund Steingríms J. og Egils Helga
Erlendar þjóðir dauðöfunda okkur, sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri, enda íslenskri hagvísar með þeim bestu sem þekkjast á vesturlöndum. Lág verðbólga, nóg atvinna, hagvöxtur og stöðugasti gjaldmiðill í heimi er meðal þess sem Ísland státar af.
Egill Helgason dró upp á dekk vonsvikinn ESB-sinna til að draga um þá mynd að Íslendingar væru hnípin þjóð í vanda. Steingrímur J. Sigfússon skammaði fyrrum flokksfélaga sinn úr Alþýðubandalaginu, Má Guðmundsson, fyrir að tala skýrt um stöðu hagkerfisins.
ESB-sinnar og vinstrimenn eru með böggum hildar vegna þess að Ísland réttir úr kútnum. Þessir hópar þrífast á vanlíðan.
Athugasemdir
Má ekki fagna í eina mín! Þagna svo í aðra til að votta vinsrtinu virðingu sína og betri líðan.
Helga Kristjánsdóttir, 6.11.2014 kl. 00:00
Gleði kjósenda er svo óhemjuleg að traust á ríkisstjórninni hefur hrunið úr 50% í rúmlega 30%.
Framsóknarflokkurinn komin niður í eins tugs fylgi og Sjálfstæðisflokkur nálgast sitt sögulega lágmark.
Greinilegt að kjósendur átta sig ekki á því hvað erlendar þjóðir eiga öfunda okkur af.
Páll getur kannski útskýrt það fyrir heimskum kjósendum ?
Jón Ingi Cæsarsson, 6.11.2014 kl. 11:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.