Þriðjudagur, 28. október 2014
Kvenréttindi eru rasismi
Kvenréttindakonur, sem neita að hylja andlit sitt, eru haldnar múslímafóbíu, er haft eftir Kohmeini sáluga í grein í Die Welt þar sem höfundurinn, Oliver Jeges, andmælir þeim sem brennimerkja gagnrýni á múslímatrú sem fóbíu.
Hér á Íslandi eru þeir kallaðir rasistar sem efast um að heppilegt sé að hlaða undir múslímatrú, t.d. með því að veita leyfi fyrir mosku í þjóðbraut.
Múslímatrú er ósamrýmanleg vestrænum kvenréttindunum. Þjóðríki múslíma skrifa ekki upp á mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem mælir fyrir um jafnrétti kynjanna. Kairó-yfirlýsingin er mannréttindaskrá múslímaríkja og þar er konan sett skör lægra en karlinn.
Ísland í fyrsta sæti eins og venjulega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Páll - sem og aðrir gestir þínir !
Mjög svo þakkarverð - þessi ærlega og drengilega demba á þá Múhameðsku / síðuhafi góður.
Enda: verðskulda þeir ekkert annað.
Með beztu kveðjum - af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.10.2014 kl. 20:32
Sæll Páll,
Flest öll ríki heims skrifuðu undir Mannréttinda sáttamála Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal flest ríki í múhameðstrú.
Ég vil benda á að hér í Bandaríkjunum vantar mikið upp á að jafnrétti sé á við það sem það var á Íslandi þegar ég flutti þaðan 1996. Norðurlöndin búa við mjög sterkt jafnrétti, enda kvenleggur okkar sterkur langt aftur í aldir.
Óskar: Ég vil nú bara benda þér á að hin Kristna kirkja var heltekin af hræðslu við konur á miðöldum og kom þeim svo kyrfilega undir hæl kirkjunnar að kúgun kvenna var nánast algjör langt fram á síðustu öld. Allt frá upphafi Biblíunnar voru konur settar mörgum skörum lægra heldur en karlar og vil ég þar benda þér á að lesa gamla testamentið (og raunverulega lesa það ekki einhverjar útþynntar ruglubókmenntir sem flestir lesa sem nenna ekki að lesa sjálfa bókina)
Kveðja,
Arnór Baldvinsson, 28.10.2014 kl. 20:48
Sælir - á ný !
Arnór !
Og Aztekar o. fl. iðkuðu mannfórnir einnig / á sínum tíma.
Eigum við ekki - að halda okkur við þann raunveruleika Arnór minn: að Múhameðstrúin er einhver alversta trúar plága í okkar samtíma/ ágæti drengur ?
Svo - ekkert fari nú á milli mála: Arnór minn.
Minni þig - og aðra / á : Sin-kiang í Kína / Nígeríu og Írak og Sýrland og atburðarás alla á þeim slóðum t.d. Arnór.
Með ekki síðri kveðjum - en hinum og áður /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.10.2014 kl. 20:59
Skrýtið að heyra, Arnór, ekki vantaði mikið upp á það þegar ég var þar löngu fyrir þann tíma, gegnum hann og eftir hann. Það er líka sem dæmi, miklu meira einelti á Íslandi en þar.
Elle_, 28.10.2014 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.