Þriðjudagur, 14. október 2014
Ríkisfjölskylda vinstrimanna og góða fólkið
Vinstrimenn eru góða fólkið sem Elliði Vignisson gerir skil; fólkið sem allt veit um það hvernig við hin eigum að haga okkur og hvaða skoðanir við eigum að hafa.
Vitanlega veit formaður góða fólksins, afsakið, Samfylkingar, hvernig ríkisfjölskyldan á að líta út og hvað hún á að eyða í hvaða vöru og hvernig lífi hún á að lifa.
Bráðum birt Samfylkingin á heimasíðu sinni hvað ríkisfjölskyldan á að borða, hvert hún á að fara í ferðalag og hvernig hún skal eyða tómstundum sínum. Þá verða ítarlegar uppeldisleiðbeiningar á heimasíðu Samfylkingar fyrir ríkisfjölskylduna.
Síðast en ekki síst birtir Samfylkingin okkur hvaða stjórnmálaskoðanir eru samþykktar fyrir ríkisfjölskylduna.
Í ríkisfjölskyldusamfélagi Samfylkingar eru allir eins.
Neysluviðmið endurskoðuð séu forsendur rangar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hahahaha, margur heldur mig sig Páll, margur heldur mig sig...
Jón Bjarni, 14.10.2014 kl. 16:26
Um hvað fjallar eiginlega þessi pistill?
Er það einhver sérstök stjórnmálaskoðun að frekar skuli nota rangar forsendur í útreikningum á forsendum fjárlaga, heldur en réttar???
?
Guðmundur Ásgeirsson, 14.10.2014 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.