Þriðjudagur, 30. september 2014
Vinstrimenn og kaupfélagsstjórinn sem stjórnar Íslandi
Einu sinni formæltu vinstrimenn Davíð Oddssyni fyrir að stjórna Íslandi. Vinstrimenn sáu Davíð á bakvið allt sem þeim var ekki að skapi. Í skjóli þráhyggjunnar um Davíð urðu ýmsir lukkuriddarar í viðskiptum að sérlegum skjólstæðingum vinstrimanna, - með það eitt sér til ágætis að Davíð taldi þá ekki merkilega pappíra.
Kaupfélagsstjórinn í Skagafirði, Þórólfur Gíslason, er kominn í hlutverk Davíðs Oddssonar. Samkvæmt vinstrimönnum stjórnar Þórólfur viðskipta- og fjármálalífinu á bakvið tjöldin. Helsti samfélagsrýnir vinstrimanna, Guðmundur Andri Thorsson, segir Þórólf sitja við hægri hönd guðs og dæma þar einn í gjaldþrot en annan til auðlegðar.
Auðvitað renna sem fyrr lukkuriddarar á slóð vinstrimanna og segja Þórólf ábyrgan fyrir því að þeir hafi ekki ,,meikað" það í viðskiptum. Vinstrimenn lofsynja lukkuriddarana enda sjá þeir aldrei rangan hest án þess að veðja á 'ann.
Bankalegar forsendur réðu för | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þessi undarlega árátta vinstrimanna að leita eilíflega eftir og finna frumtýpu hins illa hlýtur að stafa af einhverri kemískri brenglun í heila þessa fólks. Slík er hóphegðunin.
Ragnhildur Kolka, 30.9.2014 kl. 09:44
Páll blaðamaður er nú ekki í vandræðum með að finna sína syndahafra... ferst að tala um aðra. hahah
Jón Ingi Cæsarsson, 30.9.2014 kl. 12:27
Já hugsið ykkur hvað lífið væri dásamlegt ef enginn væri vinstri maðurinn. Þá gætum við öll grætt á daginn og grillað svo saman á kvöldinn
Baldinn, 1.10.2014 kl. 14:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.