Fimmtudagur, 11. september 2014
Árni Páll útskýrir pólitík ónýta Íslands
Vinstrimenn, einkum þó samfylkingarfólk, heldur á lofti þeirri ímynd að Ísland sé ónýtt. Samkvæmt þessari ímynd er efnahagskerfið ónýtt og stjórnskipulagið sömuleiðis, ásamt fylgihlutum s.s. gjaldmiðillinn.
Formaður Samfylkingar útskýrði í gær kjarnann í pólitíkinni um ónýta Ísland
Sífellt fleiri sjá ekki framtíð í þessu landi.
Árni Páll er sannfærður um að Ísland sé ónýtt og eigi enga framtíð fyrir sér. Ímyndin sem Samfylkingin heldur svo ákaft á lofti skilaði flokknum 12,9 prósent fylgi í síðustu þingkosningum.
Rétt er að óska Samfylkingunni til hamingju að eiga jafn staðfastan leiðtoga og Árna Pál.
Við eigum betra skilið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Skil ekkert í manninum að vera að hanga á þessu handónýta skeri. Er ekki bara meiri þörf fyrir hann í NOregi, nú eða Danmörku?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.9.2014 kl. 12:03
"Trúdur" kemur ósjálfrátt upp í hugann, thegar ákvednar mannvitsbrekkur á Althingi taka til máls og gildir thá einu, um hvad er raett. Thad er haegt ad fá flug adra leidina í Brusselaeluna handan Atlantsála med WOW Air fyrir innan vi 20.000. kall, fyrir thá sem eru búnir ad fá nóg af veru sinni hér á landi og sjá ekkert nema svartnaetti í öllum sköpudum hlutum.
Halldór Egill Guðnason, 11.9.2014 kl. 12:39
Já það er svo sem ekki stórt, til að eignast betra líf en hér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.9.2014 kl. 14:07
Hvort skilja þau það ekki að þau komist í burtu eða eru bara að drepast úr frekju?
Elle_, 11.9.2014 kl. 17:47
Ég held að þau ætli sér að bjarga heiminum með því að fórna sjálfum sér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.9.2014 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.