Miðvikudagur, 6. ágúst 2014
Jafnréttisstofa: 7 konur á móti 1 karli
Jafnréttisstofa er opinber stofnun með það hlutverk að ,,annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á Íslandi í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla."
Starfsmenn Jafnréttisstofu eru átta og skyldi ætla að stofnun með skilgreint hlutverk í jafnréttismálum gætti að jafnrétti í mannaráðningum. En það er öðru nær. Af átta starfsmönnum eru sjö konur en einn karl.
Þessi skökku kynjahlutföll (87,5 prósent konur en 12,5 karl(ar)) eru í hróplegu ósamræmi við eftirfarandi hlutverk Jafnréttisstofu
Verkefni sem Jafnréttisstofa annast eru m.a. að: hafa eftirlit með framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, miðlun upplýsinga um jafnrétti kynjanna, fræðsla og ráðgjöf til einstaklinga, félaga, fyrirtækja, stofnana og stjórnvalda á öllum stigum. Þá skal Jafnréttisstofa fylgjast með þróun jafnréttismála í þjóðfélaginu, m.a. með upplýsingaöflun og rannsóknum.
Þegar Jafnréttisstofa getur ekki haldið eðlilegu kynjahlutfalli á eigin stofnun er tæplega hægt að gera ráð fyrir að stofnunin búi að slagkrafti til að jafna stöðu kynjanna úti í þjóðfélaginu.
Athugasemdir
Hver ræður í þessar stöður ? Maður spyr, hvað þarf maður að ver mikið innilega vitlaus til ráða í vinnu sjöundu eða áttunda konuna á þessum vinnustað. þega þetta apparat var stofnað voru hlutföllin 6/3
http://mummij.blog.is/blog/mummij/entry/291805/
Guðmundur Jónsson, 6.8.2014 kl. 09:19
Þetta er nú svolítið ósanngjarnt, Páll.
Ef aðeins konur sækja um auglýst starf hjá Jafnréttisstofu - hvað þá?
Kolbrún Hilmars, 6.8.2014 kl. 18:41
"Ef aðeins konur sækja um auglýst starf hjá Jafnréttisstofu - hvað þá?"
í atvinnuauglýsingum er auglýst eftir strafskröftum sem vantar til starfa, í þessu tilfelli mundu því vera auglýst eftir karli.
Guðmundur Jónsson, 6.8.2014 kl. 18:57
Guðmundur, hvaðan kemur þú eiginlega? Það er bannað að kyngreina í atvinnuauglýsingum! :)
Kolbrún Hilmars, 6.8.2014 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.