Mánudagur, 16. júní 2014
XD í Reykjavík áfram í samræðustjórnmálum
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stundaði samræðustjórnmál í samstarfi við vinstriflokkana allt síðasta kjörtímabil með þeim árangri að flokkurinn fékk í vor lélegustu kosningu í sögu sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík heldur áfram vonlausu pólitísku ferðalagi sínu inn í eyðimörk vinstrimanna með því að byrja á því að hafa samráð við vinstrimeirihlutann um nefndarkjör.
Eftir fjögur er óþarfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn að bjóða fram í Reykjavík, nema þá sem enn eitt flokksbrotið á vinstri væng stjórnmálanna. Hægrimenn hafa Framsóknarflokkinn.
Komnir undir pilsfald meirihlutans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sjálfstæðismenn eiga að nota þessi 4 ár til að eignast íbúðir/hús í næagrannasveitarfélögunum og láta Daybee eftir borgina sem verður ekki höfuðborg lengur.
Byggja alþjóðlegan flugvöll á Álftanesi, nægt er rýmið og næst-besta flugvallarstæði landsins. Daybee og hans lið getur byggt húsin sín á 6-20 metra djúpri mýri (verður ódýr sökkullinn undir húsin ..... eða ?)
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.6.2014 kl. 20:40
Já einhver bloggarinn sagði nýlega að orðið dagsatt hefði öðlast hjá sér öfuga merkingu eftir stjórnmálaferil Daybeeee !
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.6.2014 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.