Þriðjudagur, 20. maí 2014
Samfylkingarframboð XD geldur afhroð
ESB-sinni leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Stefnuskrá flokksins er moðsuðuvaðall sem býður upp á ,,kosningu" um flugvöllinn í Vatnsmýri í anda kosningakröfu vinstrimanna og Bennasinna í Sjálfstæðisflokknum um ESB-málið.
Niðurstaðan af samfylkingarvæddu framboði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er algert hrun, aðeins einn af fimm kjósendum vill moðsuðuna.
Höfundur framboðsins í Reykjavík, Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra, gerir sig sekan um stærstu pólitísku afglöp í sögu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Að láta sér detta í hug að leiða til valda í höfuðborginni ESB-sinnaðan býkrókrata af Vestfjörðum er fávísara en tali tekur.
Samfylkingarvæddur Sjálfstæðisflokkur ber dauðann í sér.
Meirihlutinn með tíu fulltrúa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Halldór var kosin í prófkjöri. Illhugi réð þessu ekki. Mér leiðist svona aðdróttnanir.
Ég kaus reyndar stelpurnar í fyrsta sætið. XD hefði gengið mun betur með þessa kvennskörunga efst á blaði.
Sleggjan og Hvellurinn, 20.5.2014 kl. 09:03
Segði mér Páll - hverja eru andstæðingar ESB í borginni að kjósa? Getur verið að ESB málið skipti bara afskaplega litlu máli í þessum kosningum?
Ekki eru ESB andstæðingar að kjósa Framsókn, og ekki Vinstri Græna.. Þessi röksemdafærsla gengur ekki upp
Bjarni Jons, 20.5.2014 kl. 09:04
Nú þyrftu svarstakka-sjallar að gera tilraun til að líta í eigin barm og spyrja: Höfuð við gengið til góðs? Etc.
Það sem er mjög áberandi er, að hávaðinn úr sjallaranni er mest frá forpokuðum einangrunarhyggjumönnum og sérhagsmunaklíkum sem flytja mál og tala á þann hátt að í raun stórhneyksli er.
Málið er einfaldlega það að ofannefndur málflutningur bullustrokka innan sjalla- og framsóknar á einna minnst fylgi að fagna í Reykjavík.
Það hefur alveg sýnt sig ef fólk leggur grannt við eyru og fylgist með pólitískt að í Reykjavík er erfiðast að ná upp öfga-hægri stemmingu.
Íbúar á Landsbyggð og í einstökum hreppum á stórreykjavíkursvæðinu ættu að íhuga þetta.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2014 kl. 09:58
Edit: ,,Nú þyrftu svarstakka-sjallar að gera tilraun til að líta í eigin barm og spyrja: Höfum við gengið til góðs?" O.s.frv.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2014 kl. 09:59
Þessi fyrrum formaður Samfó á Seltjarnarnesi er hreinlega fyndinn í Samfylkingarfordómum sínum heheheheh. Er þetta í lagi ?
Jón Ingi Cæsarsson, 20.5.2014 kl. 11:28
Flugvöllurinn, ESB og Landsspítali við Hringbraut ganga því miður af Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík dauðum.
Flokkurinn nær líklega aðeins þremur borgarfulltrúum og aldrei meir en fjórum, sama til hvaða örvæntingarbragða þeir grípa nú í dauðateygjunum.
Jónatan Karlsson, 20.5.2014 kl. 12:35
Páll þetta er hverju orði sannara hjá þér. Nú fara Samfylkingarmenn mikinn, enda gera þeir eins og Sleggjan að kjósa ESB- konur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins en vafalaust Samfylkingu í kosningunum, eins og sést í andstöðu hans við flugvöllinn.
Sam- fylkingunni hefur tekist að nota sam- skiptamiðla til þess að rústa lýðræðinu. En Hinn vinnandi maður, sem er ekki á Facebook allan daginn, er ekki virtur viðlits, þótt hann borgi fyrir vitleysuna í fagurgalagenginu.
Ívar Pálsson, 20.5.2014 kl. 13:35
ívar
Þú veist að Reykjavík getur ekki sótt um ESB aðild?
Eða hvað?
Sleggjan og Hvellurinn, 20.5.2014 kl. 13:39
Fylgni þessarra þátta er afar sterk hjá fólki: ESB-sinni (hvar sem þeir finnast) og fylgispekt við Samfylkingar- pakkann í borginni að hætti Gísla Marteins.
Ívar Pálsson, 20.5.2014 kl. 14:50
En ef meirihluti þjóðarinnar er á móti ESB, afhverju ætlar stór hluti Reykvíkinga að kjósa ESB flokka í sveitarstjórnarkosningum?
Bjarni Jons, 20.5.2014 kl. 15:48
Það er mér algerlega hulin ráðgáta Bjarni Jóns. Það er eitthvað sem rímar ekki einu sinni inni í Atómljóði.
Held að það séu einfaldlega allir komnir í sama helvítis miðjumoðið.
Sindri Karl Sigurðsson, 20.5.2014 kl. 22:08
Þessi rök um ESB sinna halda engu vatni, frekar en nokkru öðru. Þessar skoðanakannanir benda sterklega til þess að ef ESB skiptir máli í þessum kosningum, þá sé fylgið við aðild að aukast mikið i Reykjavík, því þeir flokkar sem eru hreinir ESB flokkar munu ná öruggum meirihluta skv þessu.
Halldór Þormar Halldórsson, 20.5.2014 kl. 22:12
Já Halldór. Rétt er það.
Það er ljóst að vilji þjóðarinnar er að ganga í ESB.
Fínt að NEI-sinnar viðurkenna það loksins.
Sleggjan og Hvellurinn, 21.5.2014 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.