Föstudagur, 16. maí 2014
Vigdís er alvöru, femínistar eru til skrauts
Vigdís Hauksdóttir er alvöru stjórnmálamaður sem stendur körlum jafnfætis. Varaformaður Samfylkingar, Katrín Júlíusdóttir, er meira femíniskt skraut fremur en stjórnmálamaður á pari við karlmenn.
Þetta er niðurstaðan af samanburði á viðbrögðum við því þegar Steingrímur J. sagði Vigdísi að þegja annars vegar og hins vegar er Bjarni Ben. bað Katrínu að róa sig.
Þegar Vigdís var fyrir árás frá alræmdum karlpungi þögðu femínistar þunnu hljóði. En þegar alkunnur ljúflingur andaði á Katrínu ætlaði allt um koll að keyra.
Femínismi er mest brandari.
Athugasemdir
Fer ekki að verða svolítið þreytt að tala um konur, sem dirfast að taka þátt í stjórnmálum, sem "skraut" og "puntudúkkur"?
Ómar Ragnarsson, 16.5.2014 kl. 23:21
Jú, ég held það, Ómar.
Það er sjálfsagt að gagnrýna femínisma, eins og Páll gerir stundum, og ég held að Páll sé vel fær um að koma með bitastæðari gagnrýni en niðrandi tal um „femíniskt skraut". Svoleiðis málflutningur sýnir bara fram á að femínismi er ekki bara „mest brandari". Á meðan menn tala þannig er þörf á femínisma.
Wilhelm Emilsson, 17.5.2014 kl. 05:21
Femínisminn hér á landi er rekinn á þeim forsendum að hann er notaður til framdráttar stjórnmálakonum á vinstri kantinum en lætur óátalda kvenfyrirlitningu sem konur úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki verða fyrir. Slíkur femínismi stendur ekki undir nafni - er brandari.
Páll Vilhjálmsson, 17.5.2014 kl. 08:24
Í fyrstu línu pistilsins: Vigdís Hauksdóttir er alvöru stjórnmálamaður sem stendur körlum jafnfætis. Pistillinn sagði alls ekki að konur sem dirfast að taka þátt í stjórnmálum séu puntudúkkur. Og Vigdís er alvöru stjórnmálamaður, Katrín ekki.
Elle_, 17.5.2014 kl. 11:55
Hinsvegar ætti Bjarni Ben ekki að vera að segja fólki yfir höfuð að róa sig. Og það skiptir engu máli hvað hann er rólegur sjálfur.
Elle_, 17.5.2014 kl. 12:20
Góð greining hjá Páli. Því hún flettir ofan af öllu orðagjálfri femínistanna.
Ragnhildur Kolka, 17.5.2014 kl. 13:37
Takk fyrir svarið, Páll.
Ef ég skil þig rétt þá er femínisma á Íslandi miðstýrt af vinstri vængnum að þínu mati. En er það rétt? Er ekki málið að femínisma má finna víðar en á meðal vinstrisinnaðra. Svo er það auðvitað þannig að það eru til margar tegundir af femínisma, líkt of það eru til margar tegnundir af mörgum „ismum." Ég vitna hér í orð Fannýjar Gunnarsdóttur um femínisma í Framsóknarflokknum:
„Það kemur mér spánskt fyrir sjónir að sjá hvernig flokksmenn og formenn flokkanna á vinstri væng íslenskra stjórnmála berja sér á brjóst og kappkosta að telja landsmönnum trú um að þeir og þeirra flokksmenn séu hinir einu sönnu femínistar sem starfi með jafnrétti kynjanna og kvenfrelsi að leiðarljósi. Ég get alls ekki annað en glaðst yfir því ef allir stjórnmálaflokkar vinna markvisst að jafnréttismálum en það er mín skoðun að Framsóknarflokkurinn standi þar fremstur meðal jafningja."
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1140375/
Wilhelm Emilsson, 17.5.2014 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.