Sunnudagur, 2. mars 2014
Björn: 1000 svartstakkar Þorgerðar Katrínar
Björn Bjarnason fyrrum dómsmálaráðherra segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur senda flokksfélögum á landsfundum Sjálfstæðisflokksins kaldar kveðjur með skammaryrðum. Björn skrifar
Eitt er að verða undir á fundi sem á annað þúsund manns sækja annað að hallmæla þeim sem menn eru ósammála með skammaryrðum. Það bendir ekki til þess að menn hafi trú á eigin málstað þegar gripið er til þess ráðs að útmála þá sem menn eru ósammála á þann veg sem heyra mátti í sjónvarpsfréttunum.
Björn spyr hvað vaki fyrir RÚV að leita uppi þá fáu sjálfstæðismenn sem vilja Ísland inn í Evrópusambandið, - en skv. mælingum eru þeir um tíu prósent kjósenda flokksins og sennilega í enn minni minnihluta í flokknum sjálfum.
Frjálslynda fólkið að yfirgefa flokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Rétt Páll, þarfur pistill hjá Birni að vanda. Þessi margra daga vaðall og þessar blammeringar með ónefnum er eins ómálefnalegur og verða má, en ESB- aðlögunarsinnar telja sig jafnan málefnalega. Já, kannski ESB-málefnalega!
Ívar Pálsson, 2.3.2014 kl. 21:56
Var að fá þetta prýðis myndband, vona að það skili sér hér. http://predikarinn.blog.is/blog/predikarinn/entry/1359483/#comment3499158
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2014 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.