Græðgi og samfélag

Óheft græðgi eyðileggur traust og án þess liðast samfélagið í sundur. Íslenska útrásin var óheft græðgi enda gekk verulega á samfélagslegt traust á meðan auðmenn riðu um héruð með flokka sína og skiptu upp hagkerfinu í friði fyrir stofnunum samfélagsins.

Virtur breskur álitsgjafi í hagstjórn, Roger Bootle, ber saman breskan kapítalisma og rússneskan. Meginmunurinn, segir hagspekingurinn, er að í Bretlandi er til traust en í Rússlandi ekki. Traust birtist í samskiptum fólks og stofnunum ríkisvaldsins. Á tímum útrásar var íslenska ríkisvaldið að stórum hluta beygt undir vald auðmanna. Við vorum á leiðinni inn í rússneskt ástand, áður en forlögin í formi hrunsins gripu í taumana og forðuðu okkur frá allsherjareymd.

Bootle er sannfærður kapítalisti í þeirri merkingu að hann telur ekkert fyrirkomulag hagstjórnar betra en kapítalisma. En hann telur jafnframt að óheftur kapítalismi sé lítt skárra ástand en altækur kommúnismi.

Bootle segir að á tímum Thatcherismans í Bretalandi hafi hneigð verið í átt að óheftum kapítalisma þar sem græðgin var vegsömuð á kostnað annarra samfélagslegra gilda. Ein afleiðingin var stjórnlaus græðgi bankamanna sem stunduðu viðskipti er skildu eftir sig sviðna jörð - alveg eins og á Íslandi.

Á Íslandi stendur yfir endurbygging hagkerfisins eftir hrun. Í þeirri uppbyggingu ættum við að hafa í huga innsæi skynsamra manna eins og Roger Bootle.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Mæl þú manna heilastur, Páll, í stórgóðum pistli, sem tekur á málinu eins og best má verða. Og til þess að traustið sé sem víðtækast verður að rekja alla leið þræði skefjalítillar græðgi á kostnað annarra gilda, finna út hve almenn hún gat orðið og getur orðið og bregðast við því.

Ómar Ragnarsson, 6.1.2014 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband