Mánudagur, 23. september 2013
Tölvupóstar og túlkun staðreynda
Líkleg ástæða fyrir kröfu Jóns Ásgeirs um að fá yfirlit yfir tölvupósta í vörslu sérstaks saksóknara er að túlkun tölvupóstanna veltur á samhengi þeirra.
Vörn Jóns Ásgeirs verður að skilaboðin sem hann sendi í tölvupóstum snerti mest lítið afgreiðslu lána til viðskiptagjörninga hans. Þetta hafi verið sniðugheit með brosköllum og þess háttar.
Til að auka möguleika sína á túlkun gagnanna verða Jón Ásgeir og lögmaður hans að vita hvaða tölvupóstar eru hjá sérstökum.
Jón Ásgeir vill fá 466 tölvupósta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Af hverju þarf hann tölvupósta sem hann sendir sjálfur ?
Var hann búinn að eyða þeim sín megin ? eða farga tölvuni með sönnunargögnum.
Og er ekki SS búinn að bjóða þeim heim í kaffi til að lesa tölvupóstana ?
Birgir Örn Guðjónsson, 23.9.2013 kl. 16:27
Af hverju hjaðna allir eins og rjómaklessa ef Jón Ásgeir mótmælir ?????????????
rhansen, 23.9.2013 kl. 21:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.