Mánudagur, 9. september 2013
Dýr vinsældakaup Jóhönnustjórnar
Síðustu fjárlög ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. voru kosningaloforð sem engin innistæða var fyrir. Ríkisstjórnin reyndi að kaupa sér vinsældir með loforðum um styrki og stuðning inn í framtíðina.
Þjóðin hafnaði ríkisstjórn Jóhönnu og þeim flokkum sem að henni stóðu. Því er eðlilegt að útgjaldaliðir ríkisstjórnarinnar verði endurskoðaðir.
Það stendur upp á nýja ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að útskýra nýja forgangsröðun annars vegar og hins vegar hvers vegna ekki er hægt að fjármagna kosningaloforð vinstristjórnarinnar.
Skorið niður til kvikmynda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.