Nemendur sem hagtölur, menntahroki Illuga

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra lítur á framhaldsskólanemendur sem hagtölur. Hann undirstrikaði þann skilning sinn í viðtali við Spegilinn. Illugi spyr hvað réttlæti það að íslenskir framhaldsskólanemar útskrifist árinu seinna úr framhaldsskóla en nemendur í ríkjum OECD?

Jú, hér er svarið Illugi:

- íslenskir framhaldsskólanemar vinna á sumrin, ólíkt OECD-unglingum

- íslenskir framhaldsskólanemar vinna iðulega með námi, ólíkt OECD-unglingum

Þetta eru meginskýringarnar á því að dæmigerður íslenskur framhaldsskólanemi er lengur í námi en útlenskir.

Nú getur verið að Illugi hafi ekki vanist því að dýfa hendi í kalt vatn þegar hann var unglingur. Það getur líka vel verið að Illuga sé illa við atvinnulífið og vilji ekki að unglingar kynnist launavinnu.

Menntahrokinn sem brýst fram í orðum Illuga er lítt skiljanlegur. Flestir eldri en tvævetur vita að fleira er menntun en bóknám. Þátttaka í atvinnulífinu er lærdómur sem skiptir einstaklinginn máli og ætti ekki að þurfa að taka það fram.

Ef menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins er mótfallinn atvinnuþátttöku unglinga þá fer að verða spurning fyrir hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur.

 


mbl.is Mun stytta nám til stúdentsprófs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég tek undir þetta með þér. Mér fannst það ómetanlegt, til að öðlast þroska og víðsýn,i að fá að stunda almenn verkamannastörf til sjávar og sveita allt frá tíu ára aldri fram yfir tvítugt.

Ég kynntist ógleymanlegu fólki af háum og lágum stigum og mér var kennt að vinnan göfgaði manninn, - öll störf væru mikilvæg og ekkert öðru óæðra.

Aldrei fannst mér um barnaþrælkun eða vinnuþrælkun að ræða.

Það var vegna þess að ég var hjá góðu fólki og hjá góðum verkstjórum síðar meir og gat ráðið því sjálfur hve mikið ég lagði mig fram án þess að ganga fram af mér.

Og mér fannst örvandi fyrir uppvaxandi strák að taka á með körlunum í uppskipunarvinnu og annarri erfiðisvinnu og fá greitt fyrir.

Mér finnst ég hafa búið að því alla ævi að kynnast öllum stigum þjóðlífsins og það er "menntun" sem seint verður ofmetin.

Ómar Ragnarsson, 15.8.2013 kl. 20:22

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ekki heyrðist mér Illugi vera á nokkurn hátt drambsamur,miklu frekar að hann vilji stytta nám til stútents,sem hefur verið meira og minna á döfinni frá 1994.,Þannig að nemendur kæmust fyrr út á vinnumarkað sem væri þeim í hag. Hann nefndi í viðtalinu að allt of fáir veldu að fara í Iðnnám. Það þyrfti að efla námsráðgjöf,þannig að unglingar hrökklist ekki frá námi á Háskólastigi yfir í verk/iðnnám.sem væri algengt.Víst þarf að hagræða og stýra menntamálum rétt eins og öllu því sem ríkið kostar til. Kannski er ég sammála ráðherranum því málin þekki ég frá eigin ranni.

Helga Kristjánsdóttir, 16.8.2013 kl. 00:18

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það á að vera val en ekki kvöð, hversu langan tíma fólk vill klára námið.

Gunnar Th. Gunnarsson, 16.8.2013 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband