Fimmtudagur, 25. júlí 2013
Björn Bjarna varar ríkisstjórnina við
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs heyktist á því að draga formlega tilbaka ESB-umsókn Samfylkingar frá 16. júlí 2009. Hik ríkisstjórnarinnar er undarlegt í ljósi þess að Samfylkingin, sem er eini ESB-flokkur landsins, fékk 12,9 prósent fylgi í nýafstöðnum kosningum.
Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra segir eftirfarandi í leiðara Evrópuvaktarinnar
Undarlegt er ef ríkisstjórn flokka sem lýst hafa andstöðu við ESB-aðild telur sér skylt að fara að kröfum Brusselmanna um einhverjar tímasetningar við framkvæmd stefnu sinnar. Ríkisstjórnin verður að fylgja skýrri og afdráttarlausri stefnu í samræmi við umboð sitt frá kjósendum og hið sögulega afhroð ESB-flokksins í kosningunum 27. apríl. Geri ríkisstjórnin það ekki verður trúnaðarbrestur gagnvart henni í ESB-málinu
Í upphafi haustþings hlýtur að liggja fyrir þingsályktun frá ríkisstjórninni að alþingi afturkalli mistökin frá 16. júlí 2009.
Athugasemdir
Heyr heyr !!
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.7.2013 kl. 11:55
Það hefur kanske farið fram hjá Birni Bjarnasyni og Páli Vilhjálmssyni, að fjöldinn allur af ESB-sinnum eru í Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum og sumir engir smákallar.
Jóhannes Ragnarsson, 25.7.2013 kl. 12:27
bb virðist ekki fatta að þessir 2 flokkar lugu sig til valda og þar fengu þeir "umboð sitt frá kjósendum". hann veit líka að síðustu kostningar snerust alls ekki um esb
Rafn Guðmundsson, 25.7.2013 kl. 12:42
Hvaða umboð eru menn að tala um? Ég bendi á að í sjálfri stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins 2013 stendur skýrum stöfum og orðrétt: "Þjóðin tekur ákvörðun um aðildaviðræður við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu"
Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að berjast fyrir stefnumálum sínum?
Jón Kristján Þorvarðarson, 25.7.2013 kl. 16:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.