Laugardagur, 6. júlí 2013
RÚV grunar Dorrit um glæp
Einn fjölmiðla er RÚV með raðfréttir af lögheimilisfestu forsetafrúarinnar. Dorrit var til meðferðar í kvöldfréttum RÚV með fyrirsögninni ,,Dorrit ekki í skattrannsókn".
Það var og. Næsta Dorrit-frétt RÚV gæti verið með eftirfarandi fyrirsögn: ,,Dorrit ekki handtekin vegna þjófnaðar."
Skringilegt fréttamat RÚV og ofstækiskennt sjónarhorn á fréttir sýnir að eitthvað er rotið á yfirstjórn stofnunarinnar.
Athugasemdir
mér finnst það bara gott að rúv skuli ekki 'gleyma' þessu. reglur eru reglur og þær þurfa að vera skýrar. ekki veit ég hvað er rétt en það kemur vonandi í ljós fljótlega
Rafn Guðmundsson, 6.7.2013 kl. 23:06
Ætli RÚV eigi ekki erfiðast með að gleyma því að hr Ólafur Ragnar Grímsson vann forsetaframbjóðanda Samfylkingarinnar og RÚV og þar á bæ er hvert tækifæri notað til að koma höggi á hann og aðra sem eru á Bessastöðum...
Jóhann Elíasson, 6.7.2013 kl. 23:45
Ég hef heyrt um skattfrjálsa ríkið í ríkinu sem Dorrit er að flytja til, en veit ekki hvað þær sögusagnir þýða í raun.
Sorglegt að Dorrit lendi í svona fjármálasvika-rugli á Íslandi. Það eru fleiri en hún, sem ekki skilja skattkerfið í Evrópu og víðar.
Eru allir búnir að gleyma fjármalaeftirlits-lausu bankaræningjunum á Íslandi og víðar í hinum vestræna heimi, sem misnotuðu allt og alla í eiginhagsmunaskyni? Og settu svo bara hryðjuverka-stimpil á þá sem fóru eftir ónothæfri, ólöglegri og eftirlitslausri EES-reglugerðar-ESB-netaveiði?
Sið-ómenntin, ("siðmenntin"), er allsráðandi í vestræna og pólitískt stýrða kerfinu!
Á að gera Dorrit ábyrga fyrir því, að ekkert fjármálaeftirlit er á Íslandi og víðar í Evrópu?
Hvernig virkar fjármálaeftirlitið í landinu sem Dorrit er að flytja til?
Hryðjuverkalaga-dæmda landið Ísland, er víst í raun undir stjórn NATO.
NATO kúgar fullvalda friðarríki með hryðjuverkalögum, vegna gallaðrar og hriplekrar bankaræningja-reglugerðar EES-baktjalda-stjórnenda-varðhunda heimsmafíunnar, sem stýrt er af NATO.
Vissulega eiga þjóðir sjálfar að bera ábyrgð á sínum gjörðum, og alls ekki á gjörðum eftirlitslausrar og blekkjandi EES-bankaspillingar, misnotkunar þeirra á eigum annarra, og siðblindri eiginhagsmuna-valdagræðgi.
Heimsmafíustýrða Hitlers-leikritið hefði átt að duga, til að kenna heiminum hvað heilaþveginn múgæsingur er tortímandi og hættulegur.
Mikið væri ég orðin döpur, undrandi og pirruð, ef ég væri í sporum Dorritar.
Hvernig væri að snúa sér að brestunum í eftirlitskerfunum spilltu, í staðinn fyrir að standa í öllum þessum einstaklings-mannorðsmorðum og múgæsings-áróðri?
Fjármálaeftirlitin víðs vegar um heiminn bera höfuðábyrgð, en fá að komast upp með að axla ekki þá ábyrgð, og sleppa við alla gagnrýni áróðurfjölmiðlanna "ríkisreknu"?
Dómskerfin, eða þeir sem þar ráða verkum, virka ekki á réttlátan og löglegan hátt, í "siðmenntuðum" og svokölluðum: laga og réttlætis-ríkja-heimi siðmenntaðra!
Hvers vegna?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.7.2013 kl. 23:52
Ójú Jóhann þetta apparat hefur verið misnotað mörg undanfarin ár.
Helga Kristjánsdóttir, 7.7.2013 kl. 00:30
Drullukaka fyrir neðan beltisstað sem semellur aftur í andlit bloggskrifara
hilmar jónsson, 7.7.2013 kl. 13:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.