Miðvikudagur, 15. maí 2013
Steingrímur J. lítur niður á almenning
Grein Steingríms J. í Financial Times lýsir manni sem er fyrirmunað að líta í eigin barm. Kosningaósigur ríkisstjórnar Steingríms J. og Jóhönnu er ekki þeim sjálfu að kenna eða flokkunum sem að ríkisstjórninni stóðu, VG og Samfylkingu, heldur auðtrúa almenningi sem lét kosningaloforð stjórnarandstöðunnar plata sig.
Í viðhorfi Steingríms J. kennir lítilsvirðingar gagnvart almenningi. Hann telur almenning of vitlausan til að meta allt það geipistarf sem ríkisstjórn vinstriflokkanna vann í þágu þjóðar.
Steingrímur J. skrifar greinina í Financial Times til að ná eyrum starfsbræðra sinna í ríkjum Evrópusambandsins. Þeir þekkja það vel hve almenningur er vanþakklátur. Fæstir ráðamanna erlendis eru þó svo útbelgdir af sjálfum sér að þeir skrifi texta eins og Steingrímur J.
Skynsamari en Steingrímur telur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hverjum ætli sé ekki sama lengur, hvort Steingrímur lítur upp eða niður á einhvern, eða hvort hann lítur í eigin barm eða Jóhönnu. Eitt er víst að starfsbræður hans í Evrópu þekkja þessa manngerð vel og eru fljótir að sjá að slíkir eiga útreiðina skilda.
Helga Kristjánsdóttir, 16.5.2013 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.