Föstudagur, 3. maí 2013
Össur er svarti riddarinn
Svarti riddari íslenskra stjórnmála er Össur Skarphéðinsson. Hér er myndbandið.
Össur varar við Sjálfstæðisflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hví varar Sjálfstæðisflokkurinn ekki við Össuri? Það væri nær að vara alla Evrópu við honum.
Elle_, 3.5.2013 kl. 23:29
Össur er allur þakinn svörtum blettum á tungunni,eftir átök seinustu ára. Í myndbandinu sér hann sitt óvænna albrynjaður vopnaður því eina sem hann kann með að fara pennanum,sem er orðin vita bitlaus. Væri ekki ráð hjá stuðningsliðinu að hvetja hann og sækja í smiðju RÚV-auglýsinga sem er alla að drepa,; Notaðu typpið!!
Helga Kristjánsdóttir, 3.5.2013 kl. 23:44
Hann er sjálfur baneitraða svarta "peðið" á skákborðinu sem nú strax í upphafi skákar býður sig falt !
Gunnlaugur I., 3.5.2013 kl. 23:48
Er þá Sigmundur hvíti riddarinn, eða sbr. myndbandið Arthúr konungur?
Guðmundur Ásgeirsson, 4.5.2013 kl. 00:17
"Í fyrsta lagi myndi ábyrgur þungavigtarmaður með óduldar langanir til pólitísks framhaldslífs á stærra sviði en undir Heimakletti tæpast ganga fram fyrir skjöldu með svo svera yfirlýsingu – nema hann viti að hann talar fyrir munn breiðrar kirkju innan Sjálfstæðisflokksins,“
Í öðru lagi myndi rauðvínsleginn, næturbloggandi Brusselbelgur, sem sér sína sæng sem pólitíkus útbreidda, varla eyða tíma í svona kredduskrif, nema af eftirsja af veisluhöldum, ferðalögum og vellystingum á kostnað samborgara sinna. Samborgara sem hafa algerlega hafnað hans brölti og sett hann út á gaddinn.
Halldór Egill Guðnason, 4.5.2013 kl. 02:51
"We call it a draw!"
Guðmundur Böðvarsson, 4.5.2013 kl. 13:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.