Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Baugsfærsla tekin út - tímabundið
Blogg um Baug hefur verið tekið út af síðunni. Nánari skýringar síðar.
Viðbót kl. 19:20
Ég bið lesendur afsökunar á því að komast ekki fyrr í að útskýra málið eilítið nánar. Bloggfærslan sem um ræðir var aðsent efni frá ónafngreindum höfundi. Eftir að ég birti það hafði höfundurinn samband og bað mig að taka bloggið út í nokkra daga á meðan hann væri að kynna það öðrum. Ég varð við þeirri ósk og geri ráð fyrir að bloggið birtist hér á ný um helgina.
Athugasemdir
Jæja, nú verður maður forvitinn...
Sigfús Þ. Sigmundsson, 21.2.2007 kl. 11:17
Þetta er nú eins og niðurfelling skráningar í kauphöllinni. Er Baugur að fara kaupa blogsíðuna...? eða er Páll kannski að yfirtaka Baugsmiðlana? Eins og hjá Sigfúsi þá gerist maður bara forvitinn.
Haukur Nikulásson, 21.2.2007 kl. 11:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.