Þriðjudagur, 14. ágúst 2012
Hver er vitlaus, Árni Páll?
Árni Páll Árnason vill verða formaður Samfylkingarinnar. Samt ætlar hann ekki að skilja einföldustu atriði varðandi Evrópumál þótt það sé reynt að stafa þau ofan í hann. Árni Páll talar enn eins og það sé hægt að ganga til óskuldbindandi viðræðna við Evrópusambandið um aðild. Það er einfaldlega ekki í boði.
Aðlögun er eina leiðin inn í Evrópusambandið. Olli Rehn þáverandi stækkunarstjóri gaf út árið 2007 samantekt á skilyrðum sem umsóknarríki þurfa að sæta við inngöngu. Þar segir á bls. 6
First, it is important to underline that the term "negotiation" can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate's adoption, implementation and application of EU rules - some 90,000 pages of them. And these rules (also known as "acquis", French for "that which has been agreed") are not negotiable.
Þetta er sem sagt útgáfa sem kemur út tveim árum áður en Samfylkingin fíflaði VG að samþykkja umsókn á alþingi Íslendinga sumarið 2009. Hér kemur skýrt fram að umsóknarríki eru ekki í samningaviðræðum við ESB í neinum venjulegum skilningi þess orðs. Umsóknarríkin eru í aðlögunarferli þar sem þau taka jafnt og þétt upp reglubákn sambandsins. Tveim árum síðar er Stefan Füle orðinn stækkunarstjóri. Hann gefur út sömu útgáfu uppfærða sumarið 2011. Hér er sagt á bls. 9
The term "negotiation" can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate's adoption, implementation and application of EU rules - some 100,000 pages of them. And these rules (also known as the acquis, French for "that which has been agreed") are not negotiable.
Hér er svotil nákvæmlega sama orðalagið nema að reglubákn ESB hefur stækkað úr 90 þúsund blaðsíðum í 100 þúsund.
Árni Páll lætur enn eins og hægt sé að skoða hvað er í pakkanum þó að honum sé ítrekað bent á að sú leið er einfaldlega ekki í boði. Og hver er þá vitlaus, Árni Páll Árnason?
Pistillinn tekinn að láni frá Heimssýn.
Vitlausasta hugmyndin að hætta við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kannski áttu þingmenn VG að kynna sér ESB umsóknina og hvernig hún gengur fyrir sig áður en þeir greiða atkvæði. Eru þeir of heimskir að það er hægt að fífla þá að vild?
Að sjálfsögðu eiga þingmenn að kanna þau mál sem þau samþykkja. Það er starfið þeirra!!!
Sleggjan og Hvellurinn, 14.8.2012 kl. 12:10
Undirmálsfólk er ráðandi í íslenskri pólitík.
Það blasir alls staðar við.
Rósa (IP-tala skráð) 14.8.2012 kl. 12:29
Er of mikið til ætlast af þingmönnum að vinna vinnuna sína?
Sleggjan og Hvellurinn, 14.8.2012 kl. 12:40
Vinnuskilda þeirra ætti að felast m. a.í upplýsingaskildu til almennings. Ríkisstjórninni bar að upplýsa strax hvað fælist í umsókn um ESB.Þ.e. aðlögunarferli,en ekki að leyna því og blekkja,sem hefur verið marg bent á.Við höfum líklega misskilið heitstrenginguna um gagnsæi,átti kanski að vera glært/glærir.
Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2012 kl. 14:05
Hvernig geta þingmenn upplýst almenning hvað felst í ESB umsókn ef þingmenn sjálfir þ.e STÓRNARÞINGMENN Í RÍKISSTJÓRN vita það ekki einusinnni sjálfir?
Sleggjan og Hvellurinn, 14.8.2012 kl. 14:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.