Þriðjudagur, 14. febrúar 2012
Brussel-karlar illmenni í glæpasögu
Prestsdóttirin Angela Merkel nýtur lýðhylli heima í Þýskalandi vegna þess að hún talar fyrir þýskum sparnaði og ráðdeild. Stjórnmálamenn eiga það sameiginlegt með höfundum sakamálasagna að leita eftir samnefnara almenningsálitsins - til að auka líkur á endurkosningu og metsölu.
Íslandsvinurinn Daníel Hannan er sílesandi sakamálasögur. Hann tekur eftir því að júrókratar í Brussel eru orðnir að illmennum í plotti reyfara.
Aumingja Evrópusambandið sem er með peninga á við kóka-kóla samsteypuna til að kaupa sér velvild almennings og fær það eitt upp úr krafsinu að vera heimili illmenna í glæpasögum.
Ekki í boði að stækka björgunarpakkann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú skil ég betur af hverju ESB stefnir í að verða EUSSR (eða er það DECCP?).
Nú smellur það saman;
Hausfrau Merkel prestsdóttir og Stalín ... jú hann var jú prestlærður!!!!
Jón Jón Jónsson (IP-tala skráð) 14.2.2012 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.