Sunnudagur, 27. nóvember 2011
16.-júlí svikari kominn upp á dekk
Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna var kjörinn á þing til að berjast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stefnuskrá Vinstri grænna og kosningaloforð var að halda Íslandi utan Evrópusambandsins. Björn Valur sveik þessa stefnu 16. júlí 2009 þegar hann greiddi atkvæði með þingsályktun Össurar Skarphéðinssonar um að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Í kvöldfréttum RÚV er 16. júlí-svikarinn kominn upp á dekk að hallmæla Jóni Bjarnasyni fyrir skort á samráð við þingflokk Vinstri grænna í kvótamálum.
Birni Val væri nær að leiðrétta kaldrifjuð svik við kjósendur sína áður en hann sendir Jóni Bjarna hnútur fyrir skort samráði við þingflokk þar sem helftin er Júdasarsmurð.
Ekki fullbúið frumvarp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jógríma reynir allt hvað af getur að fyrirkoma ríkisstjórninni. Rassasleikir virðist ætla að teyma hana að ætternisstapanum, og kastar hnútum í annan og heiðarlegan svein. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann hótar eigin mönnum.
Almenningur (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 19:17
Björn Valur búktalaradúkka Steingríms væri best komin í sínum ESB flokki Samfylkingunni.
Jafn glaður og hann er að ganga á bak orða sinna og svíkja kjósendur færi það honum vel. Ekta eðalkrati það á ferð.
jonasgeir (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 19:17
Það þarf enga stjórnarandstöðu með þvílíka ríkisstjórn.
Ragnhildur Kolka, 27.11.2011 kl. 19:28
Fátt kostulegra en þegar Jóhanna potar vísifingrinum út í loftið og segir skjálfandi.: ......Er stjórnarandstaðan eitthvað betri..????
.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 19:41
Annars er það auðvitað ekki sanngjarnt að kalla fólkið Samfylkingar svikahrappa.
Þetta er bara sýning fyrir alþjóð á mannlegri heimsku, stóryrðum og forræðishyggju innblandað fláræði. "Stakkarslegt" fólk sem trúir ekki á guð. Það trúir á byrokratabákn sem birtist hér nálægast í Brussel.
jonasgeir (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 19:43
Birni Val Gíslasyni var plantað inn á þing af L.Í.Ú. til að gæta hagsmuna þess félagsskapar. Þar var öllu til tjaldað. Sjallt hjá þeim af því að það var eiginleg útséð með að sjallar kæmust að í næstu ríkisstjórn, þá þurfti einhvern úr VG til að leiða málin fyrir þá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2011 kl. 20:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.