Þriðjudagur, 27. september 2011
Danir hafna evru
Danir eru afgerandi á móti upptöku evru, 50 prósent á móti en aðeins 22 prósent fylgjandi. Viðbrögð Dana sýna að þjóðin fylgist með evru-umræðunni og veit að þrír möguleikar eru í boð. Í fyrsta lagi gjaldmiðla-samstarf sem verði í varanlegu uppnámi næstu einn til tvo áratugina. Í öðru lagi að evru-samstarfið brotni upp. Og í þriðja lagi myndun Stór-Evrópu sem yfirtæki fjármálalegt fullveldi evru-þjóða.
Danir fara ekki inn í evru-samstarfið í fyrirsjáanlegir framtíð; ekki heldur Bretland né Svíþjóð.
Ísland, aftur á móti, er með umsókn í Brussel um að komast í evru-samstarfið. Og það tragikómískt.
Evruandstaða eykst í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Danska krónan er tengd evrunni.
Gengi dönsku krónunnar fylgir evrunni, upp og niður.
Danir eru ánægðir með það fyrirkomulag.
Enda er það gott.
Karl (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 13:07
Það væri synd að segja annað en að einvala lið mannvitsbrekkna skipar blogglúðrasveit ESB - EINANGRUNARSINNA.... eins og má sjá á hverju innlegginu frá þeim á þessum bloggvettvangi....
Pokapresturinn Baldur, Ómar Gáfaði og dansk - Frímanninn Jón ofl. sem allir eru á framfæri þjóðarinnar vegna einhverra annmarka td. andlegra sem krefst þess að við hin þurfum að halda þeim á floti.
Veit ekki ... en er eitthvað betra í boði fyrir kerfisafætur í ESB ..??
.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 13:49
Danska krónan er tengd evrunni en danir vilja ekki sjá evruna sjálfa - vita enda að þessa tengingu má afnema með einu pennastriki ef þörf krefur.
Svissneski frankinn var líka nýlega tengdur við evruna, með öfugum formerkjum að vísu og í hreinni og klárri sjálfsvörn.
Þessi dæmi benda ekki til aðdáunar á evru, þvert á móti, en Karl hefur rétt fyrir sér; viðkomandi þjóðir eru sáttar við sinn eigin gjaldmiðil.
Kolbrún Hilmars, 27.9.2011 kl. 14:43
Karl, ætti þá línan hér að vera bein? (euro VS DKK). Þetta er bara einn mánuður, hér er ár, eins og þú séð ganga þessi gjaldmiðlar ekki einu sinni í tagt.
En sennilega er þekking þín, Karl á ESB komin frá heilaþvottastöð ESB hjá samfylkingunni.
Brynjar Þór Guðmundsson, 28.9.2011 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.