Föstudagur, 9. september 2011
Gjaldþrota auðmenn vilja í Evrópusambandið
Björgólfur Björgólfsson er af annarri kynslóð gjaldþrota auðmanna. Faðir hans, Björgólfur Guðmundsson, keyrði Hafskip í gjaldþrot á síðustu öld og þeir feðgar saman Landsbankann og ýmis smærri fyrirtæki haustið 2008.
Björgólfsfeðgar eru sérfræðingar í gjaldþrotum og vilja endilega að íslenska þjóðin njóti góðs af kunnáttunni. Björgólfur yngri ráðleggur Íslendingum í gegnum Samfylkingar-Eyjuna, nema hvað, að ganga í Evrópusambandið.
Það er aldeilis munur fyrir aðildarsinna á Íslandi að fá liðstyrk frá Björgólfum til að kaupa miða á sýningu Evrópusambandsins. Hvaða harmleikur er settur á svið í leikhúsinu í Brussel nú um stundir? Er hann nokkuð grískur?
Athugasemdir
Er starfsmaður hans, Vilhjálmur Þorsteinsson, ekki nógu öflugur í trúboðinu eða hvað?
Guðmundur Ásgeirsson, 9.9.2011 kl. 18:24
Hver á Thorsgard og Heilsuverndarstöðina?
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.9.2011 kl. 18:34
Björgólfur er leppur Deutsche Bank. Auðróninn þjónar nú herra sínum í svörtu turnunum í Frankfurt, Josef Ackermann.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 9.9.2011 kl. 20:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.