Föstudagur, 2. september 2011
Atkvæðaverslun á alþingi
Á alþingi er verslað með atkvæði í hverju máli. Tæpur meirihluti ríkisstjórnarinnar myndar markað fyrir atkvæðaverslun þar sem þingmenn selja málafylgju sína gegn fyrirgreiðslu. Einboðið er að álit þjóðarinnar á þinginu, sem var lítið fyrir, minnki enn meira.
Nakin og hugsjónalaus valdagræðgi heldur lífi í ríkisstjórninni sem þorir ekki fyrir sitt litla líf að hitta kjósendur að máli í þingkosningum.
Það er við hæfi að Róbert Marshall sem í vetur falbauð ríkum útlendingum íslenskan ríkisborgararétt sé milligöngumaður í atkvæðaversluninni.
Verkefni haustsins er að koma ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur frá völdum.
Breytt staða frá því í morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Einmitt.
Stjórnmálaferli Jóhönnu og Steingríms lýkur sem harmleik.
Óhæft fólk og ekki vel innrætt.
Rósa (IP-tala skráð) 2.9.2011 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.