Össur grætur undan Jóni Bjarna

Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra stendur vörð um íslenska hagsmuni gagnvart Evrópusambandinu og krefst verndar fyrir landbúnaðinn gagnvart verksmiðjubúskap ESB. Umboðið sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fékk frá alþingi sumarið 2009 til að sækja um aðild að Evrópusambandinu var skilyrt. Alþingi segir skýrt og ákveðið að eitt samningsmarkmið Íslands eigi að vera vernd fyrir landbúnaðinn. Orðrétt er skilyrðið eftirfarandi

Meiri hlutinn leggur áherslu á að skýr stuðningur við mjólkurframleiðslu og annan hefðbundinn búskap verði eitt af samningsmarkmiðum Íslands. Það á t.d. við um afnám tolla þar sem tollverndin hefur verið ein af stoðum íslensks landbúnaðar, ekki síst hefðbundins landbúnaðar.

Össur neitar að fara eftir samþykkt alþingis og ber Jóni Bjarnasyni á brýn að standa í vegi fyrir þessu sérmáli Samfylkingarinnar sem aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið eru óneitanlega. Jón fylgir fram skilyrðum alþingis en Össur reynir að komast undan þeim.

Þjóðarhagsmunir eiga vitanlega að vega þyngra en flokkshagsmunir Samfylkingarinnar, þótt Össur telji að því skuli á hinn veginn farið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála því.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.6.2011 kl. 14:51

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Flokkshagsmunir Samfylkingarinnar ættu að fara saman með þjóðarhagsmunum ef allt er með felldu þar innanbúðar.

Hagsmunir flokksforystu Samfylkingarinnar þurfa samt ekki endilega að samræmast hagsmunum flokksins og þjóðarinnar.

Kolbrún Hilmars, 5.6.2011 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband