Fimmtudagur, 19. maí 2011
Reykjanesbær er þvottastöð aflandskróna í Magmabraski
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar skrifast á við eftirlitsnefnd sveitarfélaga um fyrirsjáanlegt gjaldþrot bæjarsjóðs. Meðal þess sem Árni telur bæjarsjóði til tekna er skuldabréfaeign vegna sölunnar á HS-Orku til Magma. Í bréfi segir Árni að Magma (sem heitir núna Alterra Power) vilji kaupa skuldabréfið í tengslum við fyrirhugaða sölu á HS-Orku til lífeyrissjóða.
Reykjanesbær undir stjórn Árna er þvottastöð fyrir aflandskrónur sem koma inn í hagkerfið bakdyramegin svo að ónefndir auðmenn og Ross Beaty megi hagnast.
Er ekki nóg komið, Árni?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.