Sannir vinstri grænir

Kvótafrumvarpið afhjúpaði  enn og aftur tækifærismennsku Samfylkingarinnar. Þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar hömuðust á Jóni Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra að koma með frumvörp um gerbreytt kvótakerfi en heykjast svo á stuðningi þegar til á að taka.

Fréttir af alþingi herma að þingflokkur Vinstri grænna sé orðinn svo tættur af undanlátssemi forystunnar við tækifærismennsku Samfylkingar að upp úr sjóði innan skamms.

Evrópumálin og núna framtíð undirstöðuatvinnuvegar þjóðarinnar gera kröfu um uppreisn gegn tækifæriskratisma Steingrímur J. og Árna Þórs.

Vinnuheitið á nýjum flokki: Sannir vinstri grænir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband