Fimmtudagur, 12. maí 2011
ESB-útnárinn Reykjavík
Kostnaðurinn við ESB-umsókn Samfylkingarinnar eykst jafnt og þétt. Aðsetur Norðurskautsráðsins ætti vitanlega að vera í höfuðborg aðildarlands og þar hefði Reykjavík verið efst á blaði. En vegna umsóknarinnar um aðild að Evrópusambandinu lítur alþjóðasamfélagið á höfuðborg Íslands sem útnára sambandsins.
Ísland er ekki lengur þjóð meðal þjóða heldur peð í valdatafli stórveldanna, þar sem Evrópusambandið ætlar sér stóran hlut á norðurslóðum. Þingsályktun utanríkisráðherra frá 16. júlí 2009 um að Ísland vildi verða aðili að Evrópusambandinu er stórfelldustu utanríkispólitísku mistök lýðveldissögunnar.
Í norðurslóðasamstarfi er Ísland hornkerling á meðan umsóknin um aðild að Evrópusambandinu hefur ekki verið dregin tilbaka.
Skrifstofan verður í Tromsø | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Daglega er maður minntur á þessa fjandans,, umsókn Samfylkingar í Esb. Minnug hróðugum utanríkisráðherra,með umsóknina í Brussel,án undirskriftar forseta okkar,setur að mér hroll. Þá er nú stutt í orð ávirðinganna,sem háttvirtir tuddar temja sér yfir minna tilefni.
Helga Kristjánsdóttir, 13.5.2011 kl. 01:26
Ætla ´Sannir' Islendingar virkilega að láta gamla gráhærða kellingu, geðvonda og ærulausa og gelda meðreiðarsveina hennar teyma sig á asnaeyrunum inní gasklefa Þriðja Ríkisins. Því verður vart trúað. Rísið upp hraustir menn og verjið aldargamla sjálfstæðisbaráttu íslenskrar þjóðar.
Björn Emilsson, 14.5.2011 kl. 02:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.