Föstudagur, 22. apríl 2011
Breski Verkamannaflokkurinn snýst gegn Evrópusambandinu
Össur Skarphéðinsson og Björgvin G. Sigurðsson eru félagar í Verkamannaflokknum í Bretalandi, að eigin sögn. Undir forystu Tony Blair varð Verkamannaflokkurinn Evrópusambandssinnaður. Samverkamenn Blair, t.d. Peter Mandelson, tölu þess skammt að bíða að flokkurinn beitti sér fyrir upptöku evru í stað pundsins. Leiðtogar Verkamannaflokksins stíga nú hver á fætur öðrum á stokk og gagnrýna Evrópusambandið.
Aðalstjórnmálaskýrandi Telegraph, Peter Oborne, telur ótvíræð ummerki um viðsnúning á Evrópustefnu Verkamannaflokksins. Hann tilfærir dæmi um hvöss skeyti skuggaráðherra Ed Millibands, formanns Verkamannflokksins, á framferði Brusselvaldsins. Talsmenn Verkamannaflokksins segja Breta eiga ekki að taka þátt í björgunarpakka fyrir Portúgal, það sé mál hinna 17 evru-ríkja að fást við þann vanda. Hörð gagnrýni er á tillögur um 4,9 prósent hækkun fjárlaga Evrópusambandsins.
Báknið í Brussel þenst út og lýtur eigin lögmálum. Frétt í Handelsblatt segir að þeim svæðum fækkar í Evrópusambandinu sem eiga kröfu á þróunarstyrkjum. Svæði með þjóðframleiðslu undir 75 prósent af ESB-meðaltali eiga rétt á þróunarstyrkjum. Svæðum sem svo háttar til um fækkar úr 84 í 68. Í stað þess að lækka útgjöld framkvæmdastjórnarinnar í Brussel, og þar með lækka framlög aðildarríkja, hyggst framvkæmdastjórnin búa til nýja skilgreiningu. Þau svæði sem þar sem tekjur á mann eru á bilinu 75 - 95 prósent af meðaltali ESB fá stuðning samkvæmt nýju skilgreiningunni.
Evrópusambandið vex að umfangi þótt stuðningur við sambandið minnki meðal aðildarþjóða.
Í Bretlandi hefur Íhaldsflokkurinn einn verið um andstöðu við sífelldan vöxt Evrópusambandsins. Þegar Verkamannaflokkurinn skipar sér við hlið Íhaldsflokksins í gagnrýni á Evrópusambandið ætti öllum að vera ljóst hvert stefnir með afstöðu Breta til sambandsins.
Félagar breska Verkamannaflokksins á Íslandi geta ekki lokað augunum fyrir þróun mála í eyríkinu við strendur meginlandsins.
Athugasemdir
Það er nú alveg merkilegt hvað krötum tekst þegar um ræðir að loka augunum fyrir staðreyndum sem ekki henta hverju sinni...
jonasgeir (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 12:43
Eflaust loka þeir augum og eyrum,en kæmust ekki hjá því að svara fyrirspurnum stjórnarandstöðu á Alþingi. Sýnir þessi nýja skilgreining framkvæmdastjórnar ESB,ekki að henni er ekkert heilagt,nema að viðhalda sjálfri sér. Við sem erum á móti ESB,höfum svo sannarlega ástæðu til að tortryggja hana. Það er meira en innantóm upphrópun;ekkert ESB.
Helga Kristjánsdóttir, 22.4.2011 kl. 13:29
Mæli með þessari grein Oborne.
Hún er upplýsandi.
Full djúpt í árinni tekið hjá Páli að Verkamannaflokkurinn hafi snúist gegn ESB.
Oborne segir beinlínis að það hafi ekki gerst.
En efasemdarmönnum fjölgar innan Verkamannaflokksins og þeir eru þar nú í ráðandi stöðum.
Mjög merkilegt.
Ætli íslensku félagarnir, Össur og fermingarbarnið, verði ekki síðustu fylgismenn trúarofstækismannsins ógeðslega Tony Blair.
ÞAR hæfir kjaftur skel.
Karl (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 14:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.