Miðvikudagur, 30. mars 2011
Brunaútsala hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði
Stríð eru háð víðs vegar í heiminum burtséð frá afstöðu íslenskra stjórnvalda til þeirra og má einu gilda hvað ríkisstjórnin heitir. Á hinn bóginn hafa Vinstri grænir markað sér sérstöðu vera í prinsippinu á móti styrjaldarrekstri.
Þegar prinsipp er einu sinni gerð að söluvöru verður óðara brunaútsala á þeim. Vinstri græn seldu fyrsta prinsippið sitt þegar ESB-umsóknin var samþykkt 16. júlí 2009 og í mars 2011 fer á sömu leið fyrir friðarstefnu Vinstri grænna.
Lifi ríkisstjórnin lengi enn verður annað í málefnum Vinstri grænna til sölu - en það gæti orðið meiri spurning með kaupendur.
Treysti NATO ekki fyrir horn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svona fremur pathetic hjá VG
Gunnar Waage, 30.3.2011 kl. 17:53
Þér láist að nefna Icesave prinsippið, sem var lykilatriði í kosningabaráttunni. Nei, þar, nei við ESB og nei við stríðsrekstri. Fyrir þau göfugu prinsipp flugu þeir inn á þing, en sviku hvern einasta bókstaf í stefnuskránni þegar sessurnar velgdu rass.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2011 kl. 18:13
Hvað er þetta .... Steingrímur var í Færeyjum.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 18:24
Held að NATO geti ekki fengið betri meðmæli en þau að Álfheiður treysti þeim ekki fyrir horn.
kallpungur, 30.3.2011 kl. 18:28
Sjúkt fólk.
Karl (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.