Þriðjudagur, 15. mars 2011
Umboðslaust stjórnlagaráð er ómarktækt
Stjórnlagaráð er umboðslaust enda búið til með kennitöluflakki á ábyrgð Samfylkingarinnar. Kosningarnar til stjórnlagaþings voru úrskurðaðar ógildar af Hæstarétti. Forsætisráðherra, sem áður hafði boðað formfestu í stjórnsýslunni, gekk fram fyrir skjöldu og gróf undan stjórnskipun lýðveldisins með því að ómerkja úrskurð Hæstaréttar.
Stjórnlagaráðið verður með yfirbragð atvinnubótavinnu handa þekktum skjólstæðingum Samfylkingarinnar.
Afurð stjórnlagaráðsins er fyrirfram ómarktæk.
Ítreka andstöðu við tillögu um stjórnlagaráð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.