Mánudagur, 14. febrúar 2011
Alþingi á flótta unda þjóðinni
Alþingi á að heita málstofa þjóðarinnar og fulltrúarnir sem þar sitja eiga að gæta almannahagsmuna. Raunalegt er til þess að vita að stjórnmálaflokkarnir þrír Vinstrihreyfingin grænt framboð, Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur séu á flótta undan þjóðinni.
Þríflokkurinn leggur allt kapp á að samþykkja Icesave-samningana áður en vakning almennings nær þeim hæðum að ómögulegt er fyrir þingið að sniðganga kröfuna um þjóðaratkvæði.
Forsetinn er síðasta haldreipið.
Icesave afgreitt af fjárlaganefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ALMENNINGUR Á EKKI AÐ ÓTTAST RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR..RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR EIGA AÐ ÓTTAST ALMENNING.
Númi (IP-tala skráð) 14.2.2011 kl. 21:51
Ég er búin að eiga samtal við ótal vini skólasystkin og kunningja,undanfarið. Mjög margir sögðust bara ekki getað séð eða hlustað á Jóhönnu,ein sagðist slökkva ef hún birtist á skjánum. Kannast menn við svona takta.
Helga Kristjánsdóttir, 14.2.2011 kl. 21:57
Eftirfarandi *þingmenn eru ofurstyrkþegar Landsbankans (væntanlega mútuþegar eins og Mörður kallar það) og þar með vanhæfir til að taka þátt í atkvæðagreiðslu um Icesave og skera velgjörðamenn sína Björgólfsfeðga og þeirra samverkamenn úr snörunum.:
Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylkingu
Össur Skarphéðinsson, Samfylkingu
Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu
Árni Páll Árnason, Samfylkingu
Guðbjartur Hannesson, Samfylkingu
Kristján Möller, Samfylkingu
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu
Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu
Helgi Hjörvar, Samfylkingu
Valgerður Bjarnadóttir, Samfylkingu
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki
Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki
.........................
* Listinn er ekki tæmandi
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 15.2.2011 kl. 00:02
Forsetinn er jú síðasta haldreipið en harðstjórnin er í ofsaflýti. Verður forsetinn kominn til landsins??
Elle_, 15.2.2011 kl. 00:30
Ef ekki væri fyrir Internetið og Bloggið þá væri búið að sópa hér öllu undir teppið... Bloggið er eini óháði fjölmiðillinn sem að veitir stjórnsýslunni aðhald... Þá meina ég það almenn upplýsingafæði sem því fylgir...
Það eina sem að við þurfun núna að gera er að taka blogg mótmælin okkar niður á Austurvöll... Með látum
Friðgeir Sveinsson, 15.2.2011 kl. 00:34
Jú, Helga, það er ekki hlustandi á Jóhönnu Sig. og engu trúandi sem konan segir.
Elle_, 15.2.2011 kl. 00:37
Það er alveg ljóst að ef Ólafur ætlar að bjóða sig fram aftur verður hann að senda Icesave í þjóðaratkvæði aðe að öðrum kosti farið að taka til á Bessastöðum.
Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 15.2.2011 kl. 01:49
Já Helga, ég er farin að skipta um stöð eða hreinlega slökkva á sjónvarpinu þegar íslenskir fjórflokksmenn birtast á skjánum.
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 15.2.2011 kl. 03:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.