Miðvikudagur, 22. desember 2010
Bardagajól
Jólin verða notuð til að hvessa kuta. Fréttahönnun baugsmiðla gagnvart þremenningunum í þingflokki Vinstri grænna sem stóðu upp í hárinu á sköllóttum fjármálaráðherra og gráhærðum forsætisráðherra gefa tóninn fyrir það sem koma skal. Annað tveggja gerist að þingflokkur Vinstri grænna verður barinn til hlýðni við formanninn eða að stjórnin falli.
Almennir flokksmenn fylgja þremenningunum enda eru þeir sál og inntak flokksins. Á meðan formaðurinn nýtur hóglífis valdanna klóra félagsmenn Vinstri grænna sér í kollinum og spyrja sig til hvers flokkurinn var stofnaður fyrir áratug.
Rangt svar: til að dekka gnægtaborð valdsins fyrir Steingrím J. og Árna Þór.
Rétt svar: til að verja velferðarkerfið og halda Íslandi utan Evrópusambandsins.
Athugasemdir
Hinn almenni flokksmaður fellur á krossaprófinu,er orðin kolringlaður af skinvillu.
Helga Kristjánsdóttir, 23.12.2010 kl. 02:17
Sjá núna ófyrirleitnar árásirnar á Ásmund Einar Daðason frá þessum sömu miðlum.
Þetta eru nornaveiðar andskotans !
Gunnlaugur I., 23.12.2010 kl. 09:21
Sovét gildin eru að finna í Vinstrigrænum Steingríms.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.12.2010 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.