Miðvikudagur, 24. nóvember 2010
Ólafur Ragnar hafnar ESB-aðild
Forseti Íslands talar í umboði þjóðarinnar þegar hann segir í viðtali við Reuters að þjóðarhagsmunir standi ekki til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Í viðtalinu bendir Ólafur Ragnar á það að sterkustu rök aðildarsinna, evran, skilur eftir sig rjúkandi rúst í Dublin og Aþenu.
Ólafur Ragnar Grímsson veit sem er að umsókn Össurar og Samfylkingarinnar til Brussel er feigðarflan.
Samfylkingin er einangruð í Evrópumálum og getur sér enga björg veitt.
Athugasemdir
Douglas Carswell þingmaður á breska þinginu segir í The Guardian:
"...hjálpum Írlandi að aftengjast evrunni og leyfum landinu að fara í gjaldþrot. Don't bail out Ireland, free it"
Orð í tíma töluð.
Ragnhildur Kolka, 24.11.2010 kl. 13:45
Blaðafulltrúi forsetans lýsir því yfir að hann tali í nafni þjóðarinnar. Allir í Evrópu vita að það er ekki evran sem er orsök erfiðleika í Dublin og Aþenu. Allir vita þetta nema palli. Hann er einn í heiminum.
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 14:13
Það sjá það allir heilvita menn að ísland á ekkert erindi í ESB. Aðrir hljóta bara að vera eitthvað veruleikafirrtir eða hreinlega fíbbl.
spritti (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 15:20
Karlinn á bara fína spretti öðru hvoru og þetta var ágætt hjá honum. Gott hjá honum líka að vekja athygli á makríldeilunni. Hann hefði bara mátt ganga lengra og benda á mikilvægi strandríkisréttindanna.
Gunnar Waage, 24.11.2010 kl. 15:45
Það nægir til að sannfæra mig um að aðild að ESB sé af hionu góða.
Karl (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 15:45
Karl hefur nu verid sannfærdur lengi.
Evran a mjøg storan tatt i vanda Dublin og Irlands Hrafn. Mjøg. Tar var uppgangur a medan stødnun var i Evropu. Allt of lagir vextir, lægri en verdbolga gerdi tad ad verkum ad folk var ad tapa fe a tvi ad skuldsetja sig ekki.
Nuna eru timburmennirnir of storir.
Tad er Evrunni ad kenna.
...Og vistinni i ESB audvitad.
...Vissirdu tad ekki Hrafn?
jonasgeir (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 16:02
Ég gef Ólafi Ragnar klapp á bakið í hvert sinn sem hann talar á móti ESB. Ég segi líka að það sé feigðar flan
Valdimar Samúelsson, 24.11.2010 kl. 16:22
EVRA kemur annars ekkert fullveldisafsali við. Maður gefur ekki upp fullveldi lands fyrir neina EVRU.
Elle_, 27.11.2010 kl. 02:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.