Þriðjudagur, 23. nóvember 2010
Búrkur og ásjóna alþingis
Níu af hverjum tíu Íslendingum hafa skömm á alþingi. Sitjandi þingmönnum er nokkur vorkunn þar sem líklegar ástæður fyrir megnri andúð á þingheimi eru margar hverjar horfnar úr þingsal. Engu að síður sitja þeir 63 sem síðast hlutu kjör uppi með óbeit almennings.
Fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins spyr dómsmálaráðherra hvort banna eigi búrkur sem múslímskar konur nota til að hylja smettið. Mörður Árnason þingmaður Samfylkingar hvetur ónefnda þingmenn til andlitsþvotta.
Spurning hvort að alþingismenn ættu ekki að setja upp búrkur.
Þingmenn þvoi sér í framan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mörður ætti að standa við orð sín, frjálsar handfæra veiðar,
sem leysa atvinnu og fátæktar vanda Íslendinga!
Aðalsteinn Agnarsson, 23.11.2010 kl. 16:08
Það er þjóðlegra og betra að alþingismenn klæðist lambhúshettum auk þess að leyfa frjálsar handfæraveiðar. örstutt samantekt á merkri umræðu.
hrafn arnarson (IP-tala skráð) 23.11.2010 kl. 20:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.