Mánudagur, 14. júní 2010
Jóhanna í þögn
Forsætisráðherra hefur ekkert að segja þjóð sinni enda er ríkisstjórnina þrotið örendið. Jóhanna Sig. getur ekki beðið eftir því að komast í sumarfrí og lái henni hver sem vill. Ríkisstjórnin forgangsraðaði rangt og stundaði klofninspólitík sem kom henni sjálfri í koll.
Þegar þingið kemst í sumarleyfi fara flokkarnir í uppgjörsvinnu á landsfundum og flokksráðsfundum. Þeir flokkar sem reyna að þegja í hel vandamálin sem eru óuppgerð lenda fyrr heldur en seinna á öngstræti.
Þögnin er mest rétt fyrir storminn.
Jóhanna tekur ekki til máls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.