Sunnudagur, 30. maí 2010
Ríkisstjórn án umboðs - tveir kostir
Rísstjórnarflokkarnir guldu afhroð í sveitarstjórnarkosningunum. Umboðið sem Samfylkingin og Vinstrihreyfingin fengu fyrir ári var dregið tilbaka. Í stöðunni eru tveir kostir fyrir ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Í fyrsta lagi að boða til kosninga í haust. Í öðru lagi að tileinka sér þjóðstjórnarhugsun.
Kjarni í þjóðstjórnarhugsun er að finna sem breiðustu sátt um mikilvægustu málefnin.
Fyrsta skrefið er að draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu tilbaka - 70 prósent þjóðarinnar er andvíg inngöngu og Brussel helförin er fleinn í þjóðarlíkamanaum. Í íslenskum stjórnmálum verður engin sátt fyrr en umsóknin er dregin tilbaka.
Munum halda áfram okkar verki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta voru sveita- og bæjarstjórnarkosningar, ekki Alþingiskosningar ef það skildi hafa farið framhjá þér.
Óskar, 30.5.2010 kl. 13:43
Fjórflokkurinn guldu afhroð !
En Páll Vilhjálmsson er bara aldrei takt svo skrifin hans koma ekkert á óvart !
JR (IP-tala skráð) 30.5.2010 kl. 14:05
Fjórflokkurinngalt ekki svo slæmt "afhroð".
Mos - meirihluti.
Grindavík - meirihluti.... osfrv.
Óskar G (IP-tala skráð) 30.5.2010 kl. 14:30
Íhaldið er búið að vera!
Tíminn er kominn félagar!
Ég bíð í ofvæni eftir því að við getum komið hér á sósíalisku samfélagi.
Okkur sem höldum úti bloggi ber skylda til þess að boðskapur sósíalismans sé þar í hávegum hafður og að við látum einskis ófrestað við að koma af stað þeirri byltingu sem nauðsynleg er og ég sjálfur hef unnið að hörðum höndum allt frá því á sjöunda áratugnum.
Hin marxiska sögulega greining leiðir óhjákvæmileg í ljós að nú er rétti tíminn.
Pétur Tyrfingsson (IP-tala skráð) 30.5.2010 kl. 18:31
Hin ólýðræðislega ríkisstjórn er að sökkva. Stjórnin vinnur fyrir auðræninjga og bankamenn, og gegn þegnunum.
Elle_, 30.5.2010 kl. 19:05
Enga marxista, takk, Pétur Tyrfingsson.
Elle_, 30.5.2010 kl. 19:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.