Föstudagur, 14. maí 2010
Össur og liðþjálfi Júdasar
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Árni Þór Sigurðsson þingmaður Vinstri grænna tölu fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hvorugur útskýrði hvers vegna Ísland ein þjóða í álfunni byggi við ríkisstjórn sem þrátt fyrir ítrekaða og eindregna andstöðu þjóðarinnar sækti um inngöngu í Evrópusambandið.
Árni Þór einangraður talsmður beinna svika nokkurra þingmanna Vinstri grænna við kjósendur. Vinstri grænir lofuðu kjósendum sínum fyrir síðustu kosningar að berjast gegn inngöngu landsins í ESB.
Umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið á að draga strax til baka.
Mikill árangur hefur náðst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Árni Þór er nú reyndar svo merkilegt fyrirbæri í íslenskri pólitík að mér er ekki grunlaust um að þeir myndu vilja fá eintakið til Belgíu og hafa til sýnis.
Hann er svona samnefnari fyrir sviksemi VG í Evrópusambandsmálinu - en hann er meira. Hann hefur líka skipað sér í flokk með fjármagnsbröskurum og hann hefur ekki enn getað útskýrt af hverju skattborgarar þurftu að kaupa undir hann gistingu á hóteli í göngufjarlægð frá höfuðborginni fyrir góðu ári síðan.
Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 14.5.2010 kl. 12:56
Sjálfsagt að halda því vakandi að þessir menn, Össur og Árni Þór, græddu óhemjumikið fé á BRASKI með bankabréf sem þeir komust yfir í krafti stöðu sinnar.
Árni Þór kvaðst hafa selt bréf sín að mótmæla einkavæðingarstefnu. Það er auðvitað lygi. Hann skildi nefnilega hluta bréfanna eftir.
Ætlaði að græða enn meira á BRASKINU seinna.
Karl (IP-tala skráð) 14.5.2010 kl. 14:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.