Föstudagur, 30. apríl 2010
Síma -Tóti í stjórn Exista?
Einu sinni var flokksgæðingur sem stútað lífeyrissjóði á Vesturlandi en fékk að launum forstjórastól í fjarskiptafyrirtæki sem var í eigu ríkisins. Hann launaði trúnaðinn með því að skrifa á fjarskiptafyrirtækið kostnað við að koma sér upp sumarbústað og tilbehör.
Forstjórinn lét það verða sitt síðasta verk áður en hann varð að skila kreditkorti fjarskiptafyrirtækisins sökum spillingar að fylla tankinn á jeppanum.
Síma-Tóti er vonandi ekki kominn á kreik aftur til að maka krókinn á kostnað almennings?
Ný stjórn kjörin í Exista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hundraðprósent sammála þér með hann Þórarinn V Þórarinnsson,þar fer spilltur einstaklingur.Svo fékk hann ríflegan starfslokasamning í viðbót við það sem hann hreinlega rændi af Landssímanum sáluga.Hvar sem hann situr í stjórnum,að þá er sú stjórn spillt með hann innanborðs.Heldur hann að allt fólk sé búið að gleyma hans starfsaðferðum,ónei .
Númi (IP-tala skráð) 30.4.2010 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.