Múslímar, fjölmenning og jafnrétti

Múslímar sumir hverjir komast upp með að lítilsvirða vestræn gildi, svo sem einstaklingsfrelsi og jafnrétti kynjanna, án verulegra andmæla. Þegar múslímar móðgast rís upp fjölahreyfing víða um lönd með hótunum um viðskiptabann ef ekki líflát, samanber rithöfundinn Salman Rushdie og dönsku skopmyndirnar af spámanninum.

Margvíslegar spurningar vakna um þetta ójafnvægi. Ein er þessi: Hvernig réttlæta vestrænir talsmenn fjölmenningar að múslímskum viðhorfum og lífsgildum skuli gert jafnhátt undir höfði og vestrænum?


mbl.is Múslímaklerkur segir brjálæðislegt frelsi ríkja í Ástralíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, Páll !

Tek undir hvert einasta orð, í þessum skellegga pistli !

Með kveðju, úr Árnesþingi / og ítrekuðum þökkum !

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 17:55

2 identicon

flestir vesturlandabúar eru svo úrkynjaðir að þeim fynnst það bara vera rasismi ef Evrópubúi er stoltur af menningu sinni.

Allar úrkynjaðar menningar hafa fallið, nú er komið að þeirri verstrænu. 

Labris (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 20:48

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Góður og velrökstuddur pistill.Við eigum að ræða þessi mál á opin og hreinskilin hátt.

Kristján Pétursson, 12.1.2007 kl. 21:28

4 identicon

Vestrænir talsmenn fjölmenningar réttlæta jafnrétti múslima með þeirri einföldu lífspeki að allir þegnar þjóðfélagsins séu jafnir.  Óháð kyni, trú og skoðunum.  Þetta er grundvallarstoð vestrænna þjóðfélaga.

Það að hópar í þjóðfélaginu hrópa hátt og veifa höndum er ekkert nýtt.  Það er og verður alltaf órjúfanlegur hluti af frjálsu þjóðfélagi.  Og á meðan lögum og reglum okkar er fylgt þá er blessunarlega lítið við þessu að gera.

Kalli (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 21:55

5 identicon

Kúgun kvenna er ekki einskorðuð við muslímsk lönd og er ekki hluti af íslam. Sama á við um einstaklingsfrelsi og skoðanafrelsi. Þessir hlutir hafa  færst til betra horfs tiltölulega nýverið á Vesturlöndum, og eiga lítið skylt við trú. Mörg þau öfl sem börðust sem harðast fyrir þessum réttindum, börðust líka gegn kirkjunni. Flestir múslimar vilja líka sömu réttindi og við höfum, hafa sömu vonir og þrár í lífinu. Það get ég sannreynt eftir að hafa umgengist múslima. Hinsvegar vilja þeir ekki að lítið sé gert úr þeirra menningu og trú, né heldur að ráðist sé á lönd þeirra og þeir séu fórnarlömb í valdatafli stórveldanna.  Allt væl um að vestrænni menningu sé gert minna undir höfði en múslimatrú ber vott um þröngsýni og heimóttarskap, sérstaklega þegar haft er í huga atburðir síðustu ára. t.d. Íraksstríðið og harðindi Palestínuaraba. 

gunnar ragnarsson (IP-tala skráð) 13.1.2007 kl. 03:11

6 identicon

Ástæðan er einföld, það er grunnstólpi vestrænnar menningar að mismuna ekki mönnum eftir kyni, kynþætti eða trúarbrögðum. 

Svipað gerist líka í kringum önnur trúarbrögð s.s. kristni. Ekki alls fyrir löngu varð allt vitlaust í Þýskalandi þegar Madonna hélt tónleika þar sem hún líkti eftir krossfestingu Jesús á sviði. 

En oftast eru þetta fámennir hópar fólks sem láta illa og mér finnst ekki sanngjarnt að dæma allar múslima/kristna af þeirra ólátum. Það kemur líka fram í þessari frétt sem þú vísar í er þetta skoðun eins klerks sem talsmaður múslima var mjög ósammála.

Örri (IP-tala skráð) 13.1.2007 kl. 12:09

7 identicon

Hvað er að gerast? Væri þetta ekki efni til þjóðarátaks gegn rasisma ef einhver úr Frjálslynda flokknum hefði skrifað svona ægilegan pistil?

Árni Gunnarsson (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 21:29

8 identicon

Vestrænt frelsi er líka þess veikleiki.  Öfgasinnaðir múslimar notfæra sér þetta og hæðast að og gera lítð úr vestrænum gildum.  Margir múslímar hata vestræn gildi og líta á þau sem úrkynjun, en einnig hata þeir Vesturlönd.  Samt sem áður vilja þeir flytja til Vesturlanda - af hverju?  Jú, tilgangurinn helgar meðalið.  Þegar múslímar eru komnir í meirahluta á Vesturlöndum, ætla þeir að taka þessi lönd yfir.  Þeir líta að það sem heilaga skyldu sína skv. Kóraninum að gera þetta.  Samkvæmt Kóraninum eru til tvö hús í heiminum, Hús Íslams og hús Hinna vantrúuðu.  Í húsi Hinna vantrúuðu er alltaf ófriður.  Múslímar líta á Vesturlönd sem Hús hinna vantrúuðu.  Þegar Hús hinna vantrúuðu hefur verið sigrað, ríkir friður á Jörð skv. kenningum múslíma.  Þessa vegna flykkjast þeir til Vesturlanda til að ná þessu markmiði til að "frelsa" hina vantrúuðu Vesturlandabúa. 

Örn Jónasson (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 10:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband