Helgi á RÚV og Heimildin auglýsa byrlunarmáliđ

RSK-miđlar, sem eru RÚV, Stundin og Kjarninn bjuggu til tvö af stćrri sakamálum síđustu ára, Namibíumáliđ annars vegar og hins vegar byrlunar- og símamáliđ. Í fyrra málinu voru blađamenn ásakendur en í ţví seinna sakborningar.

Namibíumáliđ hófst nóvember 2019 međ alrćmdum Kveiksţćtti Helga Seljan og Ađalsteins Kjartanssonar á RÚV. Leiddur var fram Jóhannes Stefánsson, kallađur uppljóstrari, sem sagđi tröllasögur af mútugjöfum Samherja í Namibíu um miđjan annan áratug aldarinnar. Sakamálarannsókn hófst á Íslandi og Namibíu sem sex árum síđar hefur engu skilađ.

Fyrir tćpu ári greindi tilfallandi frá stöđunni:

Jóhannes var rekinn frá fyrirtćkinu 2016 vegna óreglu. Ţremur árum síđar hóf hann samvinnu RSK-miđla um ađ ásaka Samherja, og í leiđinni sjálfan sig, um mútugjafir ţar syđra til ađ fá veiđirétt i landhelgi Namibíu. Engar sannanir hefur uppljóstrarinn lagt fram, ađeins ásakanir.

RSK-miđlar međ ríkisfjölmiđilinn í fararbroddi fela skipulega orđsporiđ sem fer af Jóhannesi sem ógćfumanni. Nýveriđ sagđi namibískt dagblađ ađ Jóhannes vćri eiturlyfjafíkill og ómarktćkur eftir ţví. Tölvupóstur sem Jóhannes skrifađi í október 2014 til vinar síns stađfestir ađ hann átti bćđi í vandrćđum međ drykkju og efni í nös. Tölvupósturinn hefur ekki birst áđur, jafnvel ţó blađamenn RÚV og Heimildarinnar hafi haft hann undir höndum. RSK-miđlar stinga undir stól upplýsingum sem falla ekki ađ myndinni sem ţeir draga upp, ađ Jóhannes sé trúverđug heimild. Tölvupósturinn er svohljóđandi í heild:

08.10.2014 kl. 09:17, JS: Sćlir, hvernig gengur. Búiđ ađ vera jákvćtt hérna og ljóst ađ mađur ţarf ađ passa sig og vera edrú. Traustiđ er mikiđ hérna og menn vilja byggja enn frekari upp í Namibíu. Ingvar talađi viđ mig um máliđ í Cape Town og ég sagđi honum ađ ég hafi tekiđ nokkrar stikkprufur en vćri hćttur. Vćru bara töfftímar sem ađ mađur vćri ađ ganga í gegnum. Hann skildi ţađ vel og ekkert mál.

Jóhannes ţarf ađ passa sig ađ vera edrú en leyfđi sér ađ taka ,,nokkrar stikkprufur". Slíkar prufur eru duft en ekki drykkur. Samt vćri Jóhannes ,,hćttur". Hann hćtti vitanlega ekki og hélt áfram líferni sem fer ekki saman viđ heilbrigđa dómgreind. DV sagđi frá stjórnlausri kókaínneyslu og öđru miđur fallegu í ađdraganda ţess ađ Jóhannes keyrđi sjálfan sig og Samherja í ţrot í Namibíu.

Tilfallandi fékk upplýsingar frá lögmanni sem hlustađi á yfirheyrslu íslensku lögreglumannanna sem heimsóttu Jóhannes í London. Lögmađurinn sagđi Jóhannes í ţví ásigkomulagi ađ hann gat ekki fariđ rétt međ eigin kennitölu. Lögreglumenn urđu ađ leiđrétta kennitöluna sem uppljóstrarinn margfrćgi gaf upp, ekki einu sinni heldur tvisvar.

Byrlunar- og símamáliđ hófst tveim árum eftir Namibíumáliđ eđa voriđ 2021. Međ vitneskju og e.t.v. í samráđi viđ blađamenn RSk-miđla var Páli skipstjóra Steingrímssyni byrlađ, síma hans var stoliđ og tćkiđ afritađ á RÚV. Ein frétt, um ímyndađa skćruliđadeild Samherja, var samin á RÚV og send til birtingar á Stundina og Kjarnann. Fréttin birtist samtímis ađ morgni 21. maí 2021. Fyrir utan lögbrotin og siđleysiđ viđ öflun og vinnslu fréttarinnar lugu blađamenn og fjölmiđlar ţeirra blákalt ađ lesendum, sögđu ađ tveir fjölmiđlar, Stundin og Kjarninn, hefđu af sjálfsdáđum unniđ frétt sem í reynd var samin á RÚV og stýrt ţađan. Ţađ ţurfti ađ fela glćpinn.

Á alla mćlikvarđa fréttamennsku er byrlunar- og símamáliđ stćrri frétt en Namibíumáliđ. RSK-miđlar, sem nú mćtti kalla RH-miđla, ţar sem Stundin og Kjarninn sameinuđust undir heitinu Heimildin, vilja á hinn bóginn ekki neinar fréttir um byrlunar- og símamáliđ en eru áfram um ađ Namibíumáliđ sé til umrćđu.

Í gćr og fyrradag var samstarf á milli RÚV og Heimildarinnar ađ ýta úr vör endurtekinni fréttaumfjöllun um Namibíumáliđ. Í fyrradag flutti Helgi Seljan á RÚV tíu mínútna eintal um Namibíumáliđ, sem hann kallar auđvitađ Samherjamáliđ, og stöđu ţess í Namibíu. Enginn ađili frá Samherja er ţar á ákćrubekk. Jóhannes uppljóstrari Stefánsson hefur ekki mćtt til Namibíu ađ gefa yfirvöldum ţar skýrslu um athafnir sínar ţegar hann stjórnađi dótturfélagi Samherja ţar syđra um miđjan síđasta áratug. Dómsmáliđ í Namibíu er alfariđ innanlandsmál.

Í eintali Helga er fariđ um víđan völl í dómsmálinu og lítt hirt um stađreyndir. Hann segir Namibíu álíka fjölmenna og Ísland - en Namibíumenn telja 3 milljónir manna. Ţá hefur hann áhyggjur af sinaskeiđabólgu hrađritara viđ dómstóla í Afríkuríkinu. Helgi veđur úr einu í annađ og er ekki međ neina frétt eđa frásögn í höndunum. Tilgangurinn er sá einn ađ koma á framfćri ađ Namibíumáliđ, Samherjamáliđ í hugarheimi Helga, sé enn lifandi á suđurhveli jarđar.

Međ eintalinu í fyrradag hitađi Helgi upp fyrir Heimildina sem kom út í gćr. Ţar er frétt sérstaklega hönnuđ til ađ sverta Örnu McClure sem var lögfrćđingur Samherja. Arna kom lítiđ sem ekkert ađ málum útgerđarinnar í Namibíu fyrr en eftir ađ Jóhannes uppljóstrari hafđi keyrt reksturinn í ţrot. Arna hefur barist fyrir ţví fyrir dómstólum ađ fá aflétt stöđu sinni sem grunuđ í sakamálarannsókn hér á landi. Í frétt Heimildarinnar í gćr er hún sett nr. 2 á lista yfir grunađa, á eftir forstjóranum (nú fyrrum) Ţorsteini Má. Meiđandi, og vísvitandi rangar, fullyrđingar eru í Heimildinni um Örnu, t.d. ţessi:

Fram hefur komiđ ađ Arna fundađi međ mútuţegunum í Samherjamálinu, ţeim James Hatuikulipi, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi og Sacky Shangala, sem allir tengjast stjórnmálaflokknum SWAPO.

Meintur fundur var kvöldverđur á veitingastađ sem Arna lét til leiđast ađ sitja fyrir beiđni Jóhannesar uppljóstrara sem bauđ Namibíumönnum til landsins. Í gögnum málsins kemur fram ađ Jóhannes vildi sýna gestum sínum íslenskar ljóskur - Arna er ljóshćrđ. Í dómsmálinu, sem rekiđ er í Namibíu, er enginn ákćrđur fyrir ađ ţiggja mútur frá Samherja. Textinn í Heimildinni, ,,mútuţegar í Samherjamálinu", afvegaleiđir og jađrar viđ ađ vera bein lygi.

Eins og gefur ađ skilja fjalla hvorki Helgi Seljan né Heimildin um byrlunar- og símamáliđ. Ţar er ţó Helgi frumheimild. Hann sat fund međ byrlara Páls skipstjóra daginn eftir ađ skipstjórinn var lagđur inn á gjörgćslu.

Lesendur Heimildarinnar, ţeir fáu sem eftir eru, og hlustendur RÚV hljóta ađ velta fyrir sér fréttamati ţessara fjölmiđla og ţeirri starfsađferđ ađ fela risastóran bjálka í augum blađamanna međ Namibíuflís. Ţegar RSK-miđlar fjalla um Namibíumáliđ auglýsa ţeir flóttann frá byrlunar- og símamálinu. Grunađir taka sér ákćruvald til ađ kaupa sér gálgafrest.  


Bloggfćrslur 9. ágúst 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband