Kristrún skilur ekki muninn á Íslandi og Úkraínu

Úkraína var verkfćri Bandaríkjanna og ESB-Evrópu til ađ setja Rússland í úlfakreppu. Tilbođ Nató til Úkraínu um ađild ađ hernađarbandalaginu voriđ 2008 hratt af stađ atburđarás sem náđi hápunkti međ innrás Rússa í landiđ í febrúar 2022. Millileikur í valdaskakinu var stjórnarbylting í Kćnugarđi, ađ vestrćnu undirlagi, áriđ 2014 og hertaka Rússa á Krímskaga í kjölfariđ.

Eftir innlimun Krímskaga gaf ţáverandi forseti Bandaríkjanna, Obama, út yfirlýsingu um ađ Rússland vćri ekki stórveldi heldur stađbundin valdamiđstöđ í Austur-Evrópu. Ellefu árum síđar býđur Trump Pútín til Alaska og stađfestir ţar međ stöđu Rússlands sem stórveldis.

Munurinn á Rússlandi sem hérađsríki í Austur-Evrópu annars vegar og hins vegar Rússlandi sem stórveldi er sá ađ stórveldaklúbburinn starfar eftir óskráđum lögmálum um gagnkvćma virđingu ađildarríkja. Meginreglan er ađ eitt stórveldi ógnar ekki brýnustu öryggis- og varnarhagsmunum annars stórveldis - nema tilgangurinn sé ađ efna til stríđsátaka. Á dögum Sovétríkjanna reyndu ţau ađ klekkja á Bandaríkjunum međ uppsetningu eldflauga í Kastró-Kúbu. Aldrei komst heimsbyggđin nćr kjarnorkustríđi en einmitt i Kúbudeilunni 1962.

Trump ţvćr hendur sínar af Úkraínu međ viđurkenningu á Rússland sem stórveldi. Eini bandamađur Úkraínu, sem vert er ađ nefna, er ESB-Evrópa, sem Trump telur ekki til stórvelda í hernađarlegum skilningi heldur stađbundiđ hérađsríki vestast á landflćmi Evrasíu. 

Úrslit Úkraínustríđsins eru ráđin, ađeins er spurning um hve stórt tapiđ verđur Úkraínu og ESB-Evrópu. Örvćnting rćđur ríkjum međal leiđtoga ESB-Evrópu (og Bretlands) sem sjá fram á sterkt Rússland á bćjarhlađinu. Til ađ bćta gráu ofan á svart draga Bandaríkin jafnt og ţétt úr viđbúnađi sínum í Evrópu. Áhöld er um hvort Nató-samstarfiđ lifi öllu lengur nema kannski ađ nafninu til. 

Í viđtengdri frétt segir Kristrún forsćtis ađ úrslit Úkraínustríđsins skipti Íslendinga ,,gríđarlegu máli". Nei, Kristrún, úrslit gresjustríđsins í Garđaríki hinu forna breyta sáralitlu fyrir Ísland sem liggur á miđju Norđur-Atlantshafi fjarri vígaslóđ í Austur-Evrópu. Fermingarstúlkan í forsćtisráđuneytinu talar eins kaldastríđshaukur er missti af falli heimskommúnismans og hruni Sovétríkjanna fyrir 35 árum. Rússland er ekki á leiđinni inn í Vestur-Evrópu međ skriđdreka. Pútín hefur hvorki áhuga á ađ standa undir öldrunarţjónustu aldurhniginna Evrópubúa né stemma stigu viđ innflćđi múslíma í álfuna. Vestur-Evrópa er einfćr um ađ tortíma sjálfri sér. 

Höfuđmáli skiptir fyrir Ísland ađ fćra ekki forrćđi íslenskra mála og utanríkisstefnu til höfuđstöđva ESB-Evrópu í Brussel. Ţar virđist Kristrún vera ađ vitkast upp á síđkastiđ, lćtur hafa eftir sér ađ ESB-ađild sé ekki í forgangi. Ţó nú vćri. Ađ fćra Ísland inn í ESB-Evrópu vćri eins og ađ flytja hćnur í minkabú og búast viđ langlífi fiđurfjárins.

ESB er međ á prjónunum áćtlun um sókn á norđurslóđum, til ađ bćta upp tapađa vígstöđu í Austur-Evrópu. Tilfallandi skrifađi um hvernig vígđur og smurđur Brussel-agent, Ţorgerđur Katrín utanríkisráđherra, teflir í tvísýnu sambandi Íslands og Bandaríkjanna međ ţjónkun viđ ESB-Evrópu. Feigđarflan utanríkisráđherra verđur ađ blása af áđur en ţađ er um seinan.


mbl.is Skiptir Íslendinga gríđarlegu máli
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 25. ágúst 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband