Kristrún vill ekki sökkva með Þorgerði Katrínu

Nokkrir dagar í júlí tættu í sundur utanríkisráðherraferli Þorgerðar Katrínar formanns Viðreisnar. Hún varð uppvís að ósannindum gagnvart þingi og þjóð, undirferli og leynimakki með Evrópusambandinu á kostnað íslenskra hagsmuna. Vinnandi fólk í dreifðum byggðum missir atvinnu sína til að Kúlu-Tobba komist til Brussel á Sagaklass. Í gær var upplýst að Þorgerður Katrín er þess albúin að fórna varnarsamstarfi Íslands við Bandaríkin til að þóknast yfirboðurum sínum í Brussel.

Þegar upplýstur er að fullu fordæðuskapur Þorgerðar Katrínar verður Híróshíma-hvellur í íslenskri pólitík. Kristrún forsætis ætlar ekki að sökkva með utanríkisráðherra og neitar að tjá sig. Þögn Kristrúnar er til að skapa fjarlægð milli hennar og Þorgerðar Katrínar. Formaður Viðreisnar berst fyrir pólitísku lífi sínu en fær ískalda þögn frá forsætisráðherra. Þú tekur mig ekki með í fallinu, segir engilásjónan við þá miðaldra hafnfirsku.

Leiftursóknin sem átti að skila Íslandi inn í ESB á nokkrum mánuðum mistókst herfilega. Ímyndarherferðin var skotin niður um leið og hún birtist í umræðugáttinni. Þorgerður Katrín ætlaði að selja Íslendingum sterkt, ráðhollt Evrópusamband með glæsta framtíð. Almenningur sá aftur veikt og undirförult Evrópusamband sem kúgar smáþjóðir til fylgilags við stórveldadrauma í norðri.

Þorgerður Katrín hefur sem utanríkisráðherra gefið andstæðingum ESB-aðildar, innan og utan þings, skotfæri sem endast í marga mánuði. Leiftursóknin gekk út á að varnir fullveldissinna myndu molna á nokkrum dögum eftir heimsókn von der Leyen og gatan yrði greið til Brussel. Allt fór í handaskolum enda viðvaningar á ferð sem héldu að hægt væri að selja landsmönnum ESB á sömu forsendum og eftir hrun.

Þogerður Katrín lítillækkaði Kristrúnu með stefnumótandi yfirlýsingum er ættu með réttu að vera á forræði forsætisráðherra en ekki fagráðherra. Kristrún, ólíkt Kúlu, er ekki hagvön stjórnmálum og græningi á alþjóðavettvangi. Hégóminn óx og úr var misheppnaðasta skyndisókn íslenskra stjórnmála, allt frá þeirri sem fékk viðurnefnið leiftursókn gegn lífskjörum - þegar Kúla var gelgja og Kvika ófædd.

Skaðræði utanríkisráðherra er ekki hægt að bæta á næstu dögum eða vikum. Ráðgjafar forsætisráðherra velta fyrir sér þeim möguleika að stokka upp stjórnarráðið, fjarlæga hafnfirsku handvömmina. Með formann Viðreisnar í stól utanríkisráðherra verður komandi þingvetur þungur og erfiður. Verði Þorgerði Katrínu ekki fórnað í ágúst verður vantraust borið upp í september. Tilræðið við íslenska hagsmuni og fullveldi þjóðarinnar er svo augljóst að jafnvel stjórnarþingmenn skammast sín.

 

 


mbl.is Kristrún tjáir sig ekki um verndartollana í bili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. júlí 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband