Miðvikudagur, 23. júlí 2025
Spiegel: Hanna Katrín gengur erinda ESB á Íslandi
Der Spiegel, virt þýskt tímarit, segir Evrópusambandið hyggja á stækkun í norðri, með áherslu að fá Grænland, Ísland og Noreg inn í sambandið. Sjávarútvegur er í forgrunni stækkunarstefnu ESB í norðurhöfum. Viljayfirlýsing sem Hanna Katrín atvinnuráðherra skrifaði undir í síðustu viku, án samráðs við alþingi, er liður í norðursókn ESB.
Blaðamaður Spiegel í Brüssel, höfuðstöðvum ESB, Timo Lehmann, skrifar fréttina sem birtist 3.júlí síðast liðinn, bæði í net- og prentútgáfu. Þjóðverjar eru áhugasamir um Ísland frá dögum þriðja ríkisins. Enn er sá áhugi fyrir hendi, þýskir fjölmiðlar, t.d. fréttaveitan nordost24.de, endurbirta frétt Spiegel.
Sókn ESB á norðurslóðir byrjar með samstarfi í viðkvæmum málaflokkum, s.s. fiskveiðum og varnar- og öryggismálum. Hanna Katrín atvinnuráðherra gerði sitt í þágu ESB, skrifaði undir viljayfirlýsingu í síðustu viku um ,,samstarf" við ESB í sjávarútvegi. Skælbrosandi Hanna Katrín er ljósmynduð með sjávarútvegsstjóra ESB, Costas Kadis, að selja frumburðarrétt Íslendinga í hendur útlendinga. Auðvitað, enn sem komið er, heitir það ,,samráð og samvinna". Innlimun klædd í falleg orð.
Ráðuneytið tilkynnti samkomulagið við ESB tveim dögum eftir að alþingi fór í sumarfrí. Hanna Katrín neitar að tjá sig um viljayfirlýsinguna, þegar Vísir innti ráðherra eftir hvað stæði fyrir dyrum. Hanna Katrín óttast fjölmiðlaumræðu um baktjaldamakkið þar sem þjóðarhagsmunum er fórnað fyrir ESB-þráhyggju.
Evrópusambandið á enga aðkomu að hafsvæðinu í kringum Ísland. Engin nágrannaþjóða okkar í austri og vestri eru ESB-ríki, þ.e. Grænland, Færeyjar og Noregur. Með einni undirskrift veitir ráðherra í ríkisstjórn Íslands framandi stórveldi ítök og afskiptarétt af íslensku hafsvæði. Samkomulagið er stórpólitísk aðgerð en Hanna Katrín spurði hvorki kóng né prest, enda gengur hún erinda ESB en ekki íslenskra hagsmuna.
ESB hugsar sér gott til glóðarinnar með ríkisstjórn Kristrúnar Frost við völd. Sendinefnd ESB á Íslandi bætir við starfsfólki, býður rúma milljón á mánuði. Það vantar liðsauka til að telja Íslendingum trú um að ógild umsókn sé í fullu gildi. Blekking er forsenda hraðferðar í sæluríkið í austri.
Samkomulagið sem Evrópusambandið fékk Hönnu Katrínu til að skrifa undir er liður í norðurslóðasókn ESB. Nánar um þá áætlun á morgun.
![]() |
Mikilvægt að fá upplýsingar um viljayfirlýsinguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)