Laugardagur, 7. júní 2025
Útlendingastjórnin
Helstu skjólstæðingar ríkisstjórnar Íslands eru útlendingar. Hælisleitendur fá sérmeðferð í trássi við lög og reglur. Hermangarar í útlöndum fá loforð um aukin íslensk framlög til hermála og gott ef ekki vilyrði um íslenska dáta að deyja í útlöndum. Utanríkisráðherra flýgur landa á milli til að styðja hryðjuverkasamtökin Hamas. Forsætisráðherra hoppar á milli evrópskra höfuðborga að leysa Úkraínustríðið.
Nefndir ráðherrar, utanríkis og forsætis, vinna hörðum höndum í þágu Brussel að gera Ísland að hjáríki Evrópusambandsins og um leið útvörð ESB á norðurslóðum. Rétt eins og ESB gæti veitt einhverjar bjargir í tröllaslag Bandaríkjanna og Rússlands á Norður-Atlantshafi.
Bókun 35 og tvöföldun veiðigjalda falla eins og flís við rass að ESB-stefnu Kristrúnarstjórnarinnar. Evrópsk lög gangi íslenskum framar og útgerðin verði ómagi á opinberri framfærslu - líkt og í ESB.
Þegar ríkisstjórnin lætur svo lítið að gefa íslenskum málefnum gaum blasir við spillt sérgæska, eins og launahækkun Jóns Gnarr og strandveiðar Sigurjóns.
Útlendingastjórnin er bastarður án málefna og baklands. Stjórnarsinnar geta ekki bent á nein meginmál sem gefa hugboð um hvernig ríkisstjórnin sér íslensk málefni þróast næstu misseri og ár. Starfsorka ráðherra er öll í þágu útlenskra hagsmuna en þeim finnst sjálfsagt að hirða laun sín úr vasa íslenskra skattgreiðenda og skammta sér ríkulega.
Tveir ríkisstjórnarflokkanna, Viðreisn og Samfylking, eru hneigðir til sérvisku sem kennd er við hinsegin. Þannig þenkjandi fólk skortir yfirleitt rökhugsun og er ósýnt um samhengi hlutanna.
Þannig segir Viðreisnarráðherrann Hanna Katrín að meint bakslag transfræða sé vegna skorts á lagasetningu. Hanna Katrín ætlar sér að setja lög um skoðanir fólks, það á að trúa að kynin séu legíó og hægt sé að fæðast í röngum líkama. En kynin eru óvart aðeins tvö og meðvitundin fæðist með líkamanum; ómöguleiki er að annað tveggja sé rangt. Það er eins og að segja að rangt barn hafi fæðst.
Og hvar tilkynnti Hanna Katrín að hún ætlaði að breyta íslenskum lögum í þágu alþjóðatrans? Nú, auðvitað, í útlöndum en ekki á alþingi Íslendinga. Og ekki í hvaða útlöndum sem er, heldur sjálfri höfuðborg Trump, Washington. Með í för ráðherra voru fulltrúar Samtakanna 78 á ríkisdagpeningum. Þegar Trump tók við embætti fyrir hálfu ári sögðu Samtökin 78 og Hanna Katrín að Bandaríkin væru ekki ,,öruggt ríki" þar sem Trumpstjórnin viðurkenndi ekki nema tvö kyn. En nú flýgur transþotuliðið vestur sátt við tilvistarvanda sinn í háborg bakslagsins gegn hinseginfræðum. Auðvitað á kostnað íslenska ríkisins.
Málefnaskortur Kristrúnar og félaga kemur fram í dauðyflislegu baklandi. RÚV reynir að peppa upp stemninguna en Glæpaleiti er komið með nýtt einkennistákn, trúðsmerki, til samræmis við trúverðugleikann. Að RÚV slepptu eru fáir sem nenna að tala máli stjórnarinnar. Jafnvel Doddi netníðingur hefur hægt um sig.
Pólitískt bakland þarf frásögn til að halda á lofti um að stjórnarmeirihlutinn standi fyrir þetta eða hitt. Eina frásögnin í boði er að kvenkynið í stjórnarráðinu mylur undir útlensk málefni en fyrirverður sig fyrir allt íslenskt. Sú frásögn selst ekki á íslensku.
Starfsáætlun þingsins er felld úr gildi, segir í viðtengdri frétt. Vonandi starfar þingið út sumarið. Í haust gætum við fengið kosningar. Útlendingaflokkarnir væru þá afhjúpaðir fyrir það sem þeir eru, - til óþurftar fyrir land og þjóð.
![]() |
Starfsáætlun Alþingis út um þúfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)